sunnudagur, janúar 13
Bumbumyndir verða ekki teknar fyrr en ég er búin að fara í klippingu á miðvikudaginn og þá koma þær á slóðinni 123.is/sveitalubbar sem er nýja blogg litlu fjölskyldunnar.
Annars er það að frétta að prófin eru byrjuð í MA og ég skilaði verkefni í náminu mínu á fimmtudag svo það var frekar mikið að gera í síðustu viku. Í gær var góður dagur. Ég og Ingvi fórum á búðarráp, þið vitið í Bónus, Byko, Húsasmiðjuna og Ellingsen þar sem ég hlustaði á hálftíma samtal um ýmsar gerðir af byssum, kosti þeirra og galla. Kíktum svo í kaffi til mömmu og pabba og það tengdist ekkert því að það var Liverpool leikur og þau eru með Sýn2. Vorum svo heppin að mamma var nýbúin að hafa morgunkaffi fyrir vinkonur sínar svo við gátum borðað á okkur gat af ýmis konar góðgæti. Svo var okkur boðið í mat í gærkvöldi og í tvö innflutningspartý sem við fórum að sjálfsögðu í. Í dag er svo hvíldardagur sem notaður verður til að pakka niður jólaskrauti, taka til, baka og fleira;-)

fimmtudagur, desember 20
Vááá hvað tíminn líður hratt. Mér finnst önnin rétt vera að byrja og svo kemur bara allt í einu jólafrí. Búið að vera brjálað að gera síðan í byrjun október svo ég hef varla stoppað til að anda. Búin að sitja tvær lotur í náminu mínu, fara í próf í sálfræði, skila tveim ritgerðum og einu verkefni, fara á haustþing kennara á Norðurlandi, skreppa til Bolungavíkur í haustfríinu, skreppa suður og hjálpa litlu systur að flytja, fara á árshátíð MA, fara á kóræfingar og syngja á jólatónleikum með Kvennakórnum, fara á hádegisjólahlaðborð með vinnunni, fara í brúðkaup, fara í mæðraskoðun, blóðprufu og sónar, fara á styttri útgáfu af foreldrafræðslunámskeiði hjá ljósmæðranemum, kenna nokkra tíma aukalega vegna forfalla, fara yfir um 700 verkefni frá nemendum og margt annað sem þarf að gera í vinnunni. Ég mæli ekki með 100% vinnu og 50% skóla þegar maður er óléttur. Þetta hefur svo sem reddast en mikið hrikalega er ég fegin að það er komið jólafrí. Næst á dagskrá er að skella sér í að koma íbúðinni í skikkanlegt horf fyrir jólahátíðina. Taka til, þrífa, hengja upp gardínur, kaupa náttborð o.fl. Svo á líka eftir að skrifa jólakort, kaupa jólagjafir, skreyta, baka, föndra, o.s.frv. Eða kannski bara að gera sem minnst, jólin koma hvort sem er. Þau komu í fyrra þegar ég var á hækjum og ekki búin að gera neitt til að undirbúa þau svo þau hljóta að koma núna líka:) Annars er það að frétta af bumbunni að hún bara stækkar og stækkar og krakkanum virðist finnast gaman að sparka. Hann hikar ekkert við að sparka í pabba sinn ef hann er að hreyfa sig á annað borð og það er bara gaman að því. En nú er ég farin að geyspa hérna fyrir framan tölvuna svo það er um að gera að fleygja sér upp í sófa og fá sér smá síðdegislúr.
miðvikudagur, október 3
Ok þá, kannski kominn tími á blogg;) Núna eru nefnilega 2 dagar í próf í sálfræði og næstu kennslulotu í HA og ég á eftir að fara yfir fullt af heimadæmum og prófum fyrir helgi þannig að núna er úrvals tími til að blogga aðeins. Síðustu vikur hafa farið í það að vinna og læra. Ingvi stakk af vestur í viku og á meðan byrjaði kennslan og svo skrapp ég í haustferð með kennurunum í Svarfaðardal. Við fórum m.a. í gönguferð og til brúðugerðarmannsins Bent sem er algjör snillingur. Tengdaforeldrar mínir komu svo um síðustu helgi og sprengdu vindsængina okkar. Við buðum þeim nú samt ásamt pabba og mömmu upp á hreindýrasteik eins og venjulega. Kannski spurning um að fara að breyta til og gefa gestum eitthvað annað en hreindýr. Fór svo í hálfa skálaferð með umsjónarbekknum mínum á mánudaginn og var alveg búin á því þegar ég kom heim um kvöldið. Er komin með kvef og hálsbólgu svo það er örugglega ekkert gaman að vera nemandi minn þessa dagana og hlusta á mig tala með rámri röddu inn á milli hóstakasta en þau verða bara að sætta sig við það. Næstu dagar og vikur fara líklega bara í vinnu, lærdóm og kakódrykkju, spennó spennó.
þriðjudagur, ágúst 14
Fórum vestur um versló og vorum frá miðvikudegi til þriðjudags. Eyddum nokkrum dögum í Bolungavík og örfáum í Miðhúsum ásamt um 30 manns, flestum skyldum Ingva. Um síðustu helgi fórum við svo í mat til Diddu frænku á fös og hittum næstum alla föðurfjölskyldu mína, Jónsa í Kálfskinni á lau ásamt vinnufélögum Ingva og mömmu á sun ásamt fjölskyldu þýsku stelpunnar sem er búin að vinna hjá henni í vetur. Ég hef sem sagt ekkert mikið þurft að elda síðustu vikur og svo erum við búin að hitta fullt af fólki. Ég byrja svo í skólanum á morgun svo nú er sumarfríið mitt að verða búið, buhu. (Ég veit, ég veit, ég hef langt sumarfrí.) Lotan núna verður frá 11-17 á mið, 8-16 á fim og svo 8-18 bæði á fös og lau. Veit ekki hvernig ég lifi þetta af búin að vera bara að gera það sem mér dettur í hug síðasta mánuðinn. En vonandi verður þetta bara skemmtilegt. Er byrjuð að lesa bókina Phychology applied to teaching og hef komist að því að a.m.k. fyrstu 20 bls fara bara í að sannfæra mann um að það sé nauðsynlegt að kunna það sem á eftir kemur ef maður ætlar að kenna. Gaman að því. Annars fann ég bók sem mig langar miklu meira að lesa en þessa þegar ég var að skoða í Bókval. Hún heitir Statistics for those who (think they) hate statistics. Ekki það að ég hati tölfræði en það væri gaman að skoða hvernig þeim tekst að gera þetta áhugavert. Hún kostaði hins vegar 8500 kall svo ég held ég bíði aðeins með að kaupa hana.
P.S. Framkvæmdir ganga svona sirka eins og við var að búast. Ákváðum að bíða aðeins með stofuna og byrja á að klára herbergið sem ég ætla að nota sem skrifstofu.
fimmtudagur, júlí 26
Framkvæmdir ganga hægt vegna... hmmm... óvenju góðs veðurfars og... ok leti þá fyrst þið endilega viljið. Ingvi er reyndar ekkert latur, alltaf að vinna bara. Það er bara ég sem ligg í leti alla daga. Nenni ekki að pússa og sparsla ein. Reyndar var reunion hjá mér á laugardaginn, 10 ár síðan við hættum í Síðuskóla og Ilmur og co komu í óvænta ferð norður um helgina svo að sjálfsögðu þurftum við að hitta þau aðeins. Ég var líka gjaldkeri í skipulagsnefndinni svo það var smá að gera í kringum það. Sko fyrir reunionið ekki fyrir ferðina hennar Ilmar;-) Annars þarf ég að fara að komast á bókasafnið svo það sé ekki svona leiðinlegt að liggja í leti allan daginn.
mánudagur, júlí 16
Ekkert mál að mála nokkra veggi! Ef málningin og allt draslið sem er undir er í þokkalegu lagi. Var að sparsla (hvernig er þetta eiginlega skrifað?) í stofunni í síðustu viku og svo kom Ingvi og fór að plokka eitthvað það sem var laust í kringum naglagat. Núna sést bara í steypuna á einum vegg í stofunni, gaman að því. Vorum líka að spá í að setja nýjar innihurðir svo húsgögnin verða bara að bíða aðeins lengur niðrí bílskúr. Ingvi segir reyndar að ég geti bara séð um þetta, ég sé bara kennari í sumarfríi og hafi nógan tíma:( En svona í alvöru þá erum við ekkert að stressa okkur og fórum bara í golf í gær því það var svo gott veður, eða Ingvi fór í golf og ég rölti með;)
fimmtudagur, júlí 5
Hæ hæ
Lífið er yndislegt:)
Ég er komin í sumarfrí og er flutt inn í nýju íbúðina mína og svo er ég ótrúlega stolt stóra systir því Valgerður komst inn í læknisfræði. Til hamingju með það!
Þegar ég komst loksins í sumarfrí þá var byrjað á því að pakka öllu draslinu niður í kassa í bílskúrinn í Miðteigi. Svo stungum við af til Finnland í vikuferð með kennurunum í MA. Þetta var fín ferð nema kannski aðeins of mikil dagskrá. Flugum til Stokkhólms, tókum ferju yfir til Turku í Finnlandi, fórum í sauna og sjóinn á pínulitlu eyjunni Fagerholm í Skerjagarðinum (Ingvi segir að það hafi liðið þrjár sekúndur frá því ég stökk af bryggjunni og þangað til ég var komin upp úr aftur), fórum til Helsinki og svo í dagsferð til Tallin í Eistlandi. (Hef ekki tíma til að skrifa betri ferðalýsingu, sorrý.) Komum til landsins á mánudag og brunuðum beint í Svefn og heilsu að kaupa rúm. Eyddum rúmlega 2 klst í IKEA á þriðjudaginn og brunuðum svo norður og fluttum dótið okkar milli bílskúra um kvöldið. Nýja "litla" heilsurúmið okkar (183x213) kom svo í gær svo við gátum gist þar í nótt. Erum að spá í að mála nokkra veggi áður en við flytjum allt draslið upp en ég held að það gerist ekki fyrr en eftir helgi því við erum að spá í að skreppa vestur á Markaðsdaginn í Bolungarvík um helgina. Ætli það sé ekki best að fara að gera eitthvað af viti, skreppa kannski í Bónus svo það sé til eitthvað að borða heima ;-)

mánudagur, júní 4
Fórum í útilegu á Hvammstanga á laugardagskvöld til sunnudags og keyptum borðstofuborð og 6 stóla. Bíllinn var svolítið þungur á leiðinni heim ;-)
föstudagur, maí 25
Prófin eru byrjuð en ég er að spá í að skella mér vestur með kallinum um helgina. Aðeins að slaka á svona í upphafi próftíðar. Fyrsta prófið hjá mér er hvort eð er ekki fyrr en á þriðjudag. Annars er lítið að frétta. Um seinustu helgi skrapp Ingvi vestur (eins og helgina þar á undan, sauðburður skiljiði) og tengdó kom norður. Þau eru svo samstillt þessar elskur;-) Svo er bara rétt rúmlega mánuður í að við fáum íbúðina okkar afhenta, ég hlakka svo til :-) Búin að skoða IKEA bæklinginn og ákveða hvað ég ætla að kaupa og hvar það á að vera. Ingvi má ráða hvað verður í bílskúrnum, hehehe. Nei nei, ég segi honum bara ekkert hvað þetta kostar, set svo bara eitthvað smá Liverpool dót einhvers staðar og svo eigum við sófa sem hann getur legið í að horfa á leiki og þá verður hann ánægður :-D
þriðjudagur, maí 15
Á landið að vera eitt kjördæmi?
Ég las frétt á mbl um misvægi atkvæða í kosningunum og svo á aðra frétt á vísi.is um hvernig úrslit kosninganna hefðu verið ef allt landið væri eitt kjördæmi.
Ég er sammála því að það er fáránlegt að stjórnin hafi fengið 48,3% atkvæða og samt fengið meirihluta. Heyrði líka einhvers staðar að á tímabili hefði Framsókn bara þurft að bæta við sig 3 atkvæðum í einhverju kjördæminu og þá hefði stjórnin fallið sem er frekar öfugsnúið. Hins vegar hef ég á tilfinningunni að ef landsbyggðin hefði færri þingmenn þá væri ansi lítið gert fyrir landsbyggðina. Nokkrir hafa bloggað um fréttina á mbl og sumir þeirra eru hneykslaðir á því að atkvæðin í norðvesturkjördæmi gildi næstum tvöfalt á við atkvæði í suðvesturkjördæmi. Örfáir hneykslast líka á því hvað er alltaf verið að gera mikið fyrir landsbyggðina. Allir þessir vegir og göng og fleira. Uuu... kannski af því að vegalengdirnar eru miklu meiri og fjallvegirnir verða stundum ófærir á veturnar. En einmitt útaf þessu viðhorfi þarf landsbyggðin fleiri þingmenn en t.d. Reykvíkingar. Það er nefnilega ekki fyrr en ríkir þjóðarsátt (er þetta ekki tískuorð núna) um að efla landsbyggðina sem hægt er að breyta þessu. Ég held líka að það þegar landbyggðin eflist þá muni Reykvíkingar líka njóta þess og það þarf ekkert endilega að gerast á kostnað borgarinnar.
Hvað finnst ykkur?

föstudagur, maí 11
Ég var að testa prófið á xhvad.bifröst.is.
Ef maður er mjög sammála öllu þá fæst:
Stuðningur við Sjálfstæðisflokk: 62.5%
Stuðningur við Framsóknarflokk: 60%
Stuðningur við Samfylkinguna: 100%
Stuðningur við Vinstri-Græna: 25%
Stuðningur við Frjálslynda flokkinn: 92%
Stuðningur við Íslandshreyfinguna: 80%
Ef maður er mjög ósammála öllu fæst:
Stuðningur við Sjálfstæðisflokk: 37.5%
Stuðningur við Framsóknarflokk: 40%
Stuðningur við Samfylkinguna: 0%
Stuðningur við Vinstri-Græna: 75%
Stuðningur við Frjálslynda flokkinn: -12%
Stuðningur við Íslandshreyfinguna: 20%
Svo hafði ég ekkert að gera svo ég testaði einstakar fullyrðingar hjá flokkunum
(S er mjög sammála, Ó er mjög ósammála og ef þeir taka ekki afstöðu fæst -)
D: S Ó S S Ó Ó S - S - -
B: S - S - S - - Ó - Ó -
S: - S S - S - S - - - -
V: Ó Ó Ó Ó S S Ó - - Ó -
F: - - S S S S S S S S S
Í: Ó - S - S - S - - S -
(Það er reyndar ekki hægt að styðja Frjálslynda meira en 92% sama hverju maður breytir!)
Samkvæmt þessu þá hafa Samfylkingin og Framsókn engin ágreiningsmál og Samfylkingin á meira sameiginlegt með Sjálfstæðisflokknum heldur en Vinstri grænum. Það eina sem Vinstri grænir og Sjálfstæðisflokkurinn eru sammála um er að hefja ekki viðræður við Evrópusambandið. Það sést líka hvað Frjálslyndir, VG og Sjálfstæðisflokkurinn taka afstöðu til miklu fleiri af þessum málum sem þarna eru heldur en hinir flokkarnir.
En svona til gamans þá fékk ég eftirfarandi niðurstöðu:
Stuðningur við Sjálfstæðisflokk: 12.5%
Stuðningur við Framsóknarflokk: 60%
Stuðningur við Samfylkinguna: 75%
Stuðningur við Vinstri-Græna: 68.75%
Stuðningur við Frjálslynda flokkinn: 23%
Stuðningur við Íslandshreyfinguna: 50%
Skoðanir þínar eru í mestu samræmi við skoðanir Samfylkingarinnar!
Veit ekki með það. Samræmast skoðanir mínar betur Samfylkingunni því ég er sammála þeim í 3 fullyrðingum af 4 hjá Samfó en "bara" 5-6 af 8 hjá VG?

Mér finnst líka undarlegt að prófið sé samið þannig að Samfylkingin og Frjálslyndir séu mjög sammála öllu sem þeir taka afstöðu til. Er ekki hægt að snúa einhverjum fullyrðingunum við og hafa t.d. einkavæðing er óæskileg í heilbrigðisgeiranum í stað einkavæðing er æskileg í heilbrigðisgeiranum.
Annars er ég ekki að taka þetta próf mjög alvarlega ;-)
En svona til gamans þá fékk ég eftirfarandi niðurstöðu:
Stuðningur við Sjálfstæðisflokk: 12.5%
Stuðningur við Framsóknarflokk: 60%
Stuðningur við Samfylkinguna: 75%
Stuðningur við Vinstri-Græna: 68.75%
Stuðningur við Frjálslynda flokkinn: 23%
Stuðningur við Íslandshreyfinguna: 50%
Skoðanir þínar eru í mestu samræmi við skoðanir Samfylkingarinnar!
Veit ekki með það. Samræmast skoðanir mínar betur Samfylkingunni því ég er sammála þeim í 3 fullyrðingum af 4 hjá Samfó en "bara" 5-6 af 8 hjá VG?
mánudagur, maí 7
Ég er á lífi;)
Hér er smá "update" af því sem ég hef verið að gera í nokkrum brotum því Blogger er með stæla.
Um jólin skruppum við vestur til Bolungarvíkur. Lögðum af stað 22. des. en þann dag varð Stebba 25 ára svo við náðum aðeins að knúsa hana og fá kökur á afmælisdaginn. Á Þorláksmessumorgni um kl. 6 þurfti ég að fara á klósettið, hoppaði þangað á hækjunum og svo þegar ég ætlaði að standa upp aftur þá varð rafmagnslaust og allir sofandi í húsinu. Það var frekar undarleg lífsreynsla að sitja á klósettinu í myrkrinu með hækjurnar í höndunum og spá í hvað ég ætti að gera. Að lokum stóð ég nú bara upp og notaði svo hækjurnar sem blindrastafi til að komast að hurðinni og þar stóð ég og kallaði á Ingva sem kom og lýsti mér með gemsanum sínum svo ég kæmist aftur inn í rúm. Á Þorláksmessu keyrðum við svo inn í Miðhús og eyddum jólunum þar með fjölskyldunni hans Ingva. Fórum á sjúkrahúsið á Ísafirði 27. des. létum mynda öklann, ristina og tærnar og fengum að vita að það væri ekkert brotið. Komum aftur norður milli jóla og nýárs og fórum í brúðkaup til Sigurbjargar og Nonna 30. des. Á gamlárskvöld var eldað hreindýr og pabbi, mamma og Valgerður voru hjá okkur. Nágranninn flippaði í flugeldasprengingum svo við flúðum inn vegna reyks rétt eftir kl. 12. Við héldum svo gamlárspartý og fullt af skemmtilegu fólki mætti á svæðið.

Skólinn byrjaði svo aftur og ég skipti um stofur við nokkra kennara svo ég var eiginlega alltaf í sömu stofunum og þurfti ekki að hoppa stiga nema fyrsta daginn. Ég sat bara með lappirnar upp á borði og krakkarnir voru að reikna og komu og spurðu mig ef þau skildu ekki eitthvað. Svo komu próf og ég þrjóskaðist við að hoppa á milli þegar mínir nemendur voru í prófum og svara spurningunum sem ég mátti svara. Eftir hádegi þriðjudaginn 16. jan. fór ég svo til læknis sem sagði að þetta væri sko ekki tognun heldur eitthvað miklu meira. Hann sagði að ég væri með gigt, gaf mér sterk bólgueyðandi gigtarlyf og vottorð um að ég væri algjörlega óvinnufær í tvær vikur eða fram að næsta tíma hjá honum. Í næsta tíma sagði hann að ég yrði líklega óvinnufær næstu þrjár vikur líka. Ég sat sem sagt bara heima upp í sófa, góndi á sjónvarpið, púslaði (eitt 500 kubba, eitt 1000 kubba og eitt 3000 kubba), las, reyndi að blogga og knúsaði Ingva þess á milli enda var hann þvílíkt góður við mig. Kitta óvinnufæra kom í heimsókn og Ingvi bakaði pönnsur fyrir okkur.
Byrjaði að vinna um miðjan feb. þegar ég var farin að geta rölt um og var komin í fulla vinnu um miðjan mars. Fór svo í brúðkaup hjá Begga frænda og Hafdísi á afmælisdaginn minn og söng einsöng á tónleikum með Kvennakórnum helgina eftir. Ég og Ingvi fórum vestur um páskana og unnum kassa af bjór ásamt Adda vini hans í Kjallarakeppninni sem er spurningakeppni á Kjallaranum. Keyptum okkur svo bílskúr í lok apríl. Vorum bara svo heppin að það fylgdi íbúð með;) Íbúðin er sem sagt 4 herbergja (3herb+stofa) á þriðju hæð í blokk í Skarðshlíð og var ég búin að segja að það er bílskúr líka. Fáum afhent mánaðarmótin júní/júlí svo ef það er einhverjum sem finnst gaman að halda á dóti upp á 3ju hæð þá endilega hafið samband;)
miðvikudagur, desember 20
Ég er komin í jólafrí og get hætt að hoppa um skólann á hækjum. Ég hef komist að því síðustu daga að þessi skóli er svo ekki gerður fyrir hreyfihamlaða. Stigarnir á Möðruvöllum eru líka í ótrúlega skrýtnum hlutföllum. Það finnst nú mörgum nógu erfitt að ganga upp á efstu hæð en þegar maður er kominn á hækjur líka þá er það nú bara ein hæð í einu, allavega fyrir aula eins og mig sem er ekki í góðu formi. Lyftuhurðin á Hólum er frekar þung og í lyftunni þarf að halda takkanum inni allan tíman svo hún hreyfist. Stigarnir í Gamla skóla eru auðvitað bara sér á báti auk þess sem það eru bara klósett á neðstu hæðinni. En það hefur nú bara gengið furðuvel að komast á milli staða í skólanum núna seinustu daga en ég hef líka fengið stundum að skipta við aðra kennara um stofu.
Á morgun ætla ég að hoppa um bæinn að kaupa jólagjafir og komast í jólaskap:)
Á morgun ætla ég að hoppa um bæinn að kaupa jólagjafir og komast í jólaskap:)
sunnudagur, desember 17
Þessi desember mánuður er sko ekki minn mánuður. Byrjaði á því að ég fékk illt í bakið og svo fékk ég hvarmabólgu og var með eldrauð sokkin augu í u.þ.b. viku. Sumir nemendur mínir gátu ekki horft í augun á mér því þeim fannst þetta svo ógeðslegt. Ekki skánaði ástandið svo þegar ég sneri mig á ökla þegar ég sparkaði í rúmfótinn. Var reyndar lengi að átta mig á því af hverju öklinn væri svona bólginn því ég hefði ekkert misstigið mig. Ingvi segir að ég hefði bara átt að setja á mig gleraugun áður en ég stæði á fætur og að ég þurfi greinilega í laser-aðgerð. Málið var að ég sá alveg rúmfótinn en hann var bara pínu fyrir mér. Mér er farið að líða eins og hálfgerðum aumingja því Ingvi gerir (næstum) allt fyrir mig. Eldar, tekur til og nær í það sem mig vantar. Annars ligg ég núna upp í sófa og er að vinna. Sem betur fer eru bara tveir og hálfur kennsludagur eftir fyrir jól ;)
fimmtudagur, desember 7
Það eru bara tvær vikur í jólafrí og mér sýnist að þær fari nú aðallega í vinnu. Þegar skólinn er búinn 20. des. þá skal ég fara að hugsa um jólagjafir og jólakort og svoleiðis dót. Þá verður líka allt of seint að skrifa jólakortin hvort sem er svo ég líklega bara sleppi því. Svo getur líka vel verið að ég skreppi bara með Ingva vestur og við eyðum jólunum í Miðhúsum með fjölskyldunni hans. Það kemur bara í ljós. Ég kem svo líklega aftur til Ak. fyrir áramót og eyði þeim hér. Þetta kemur allt í ljós einhvern tíman.
Við fórum á árshátíð MA um seinustu helgi. Hátíðin hófst svo á því að litla systir og aðrir fjórðubekkingar gengu í salinn. Bautinn sá um veitingarnar að þessu sinni en ekkert moðsteikt lamb var á matseðlinum sem kom þó nokkrum kennurum á óvart. Maturinn var mjög góður bara eins og alltaf. Gleðitríó Sigurðar Marteinssonar söng um vini og hvernig þeir hjálpa hvor öðrum að læra sönnunina á reglu 4.2 og fleira. Minni karla og minni kvenna voru frekar góð, Úlla og Snorri stóðu sig vel þar. Skaupið var á sínum stað og með fyndnustu atriðunum var þegar nemandi datt í gamla skóla og svo voru húsverðirnir sýndir hlægjandi á skrifstofunni sinni að merka við á vegginn, "náðum einum í viðbót". Það var líka fyndið þegar nemendurnir mönuðu stærðfræðikennarann til að deila með núlli og þegar hann gerði það þá sást bara blóðið slettast á nemendurna í fremstu röð. Jagúar spilaði svo fyrir dansi og í hléi voru gömlu dansarnir en þá vorum við löngu farin heim.
Helgin fór svo í að gera laufabrauð, taka til í stóra húsinu okkar, skreppa í tvö afmæli, mat til mömmu og aðrar tvær heimsóknir. Kitta kom í örheimsókn á sunnudaginn og Ilmur og Jón Atli komu á þriðjudaginn og borðuðu heilt læri. Alltaf gaman þegar fólk kemur í heimsókn. En nú er ég að fara á fund svo ég er hætt í bili.

miðvikudagur, nóvember 15
Ég er á lífi þó ég sé mjög löt við að blogga þessa dagana. Við Ingvi erum búin að fara á árshátíð Kvennakórs Akureyrar, hanga heima og hafa það gott, kíkja til foreldra minna í mat og skreppa suður í afslöppun (ef það kallast afslöppun að fara með 3,5 og 7 ára börnum í Kringluna) og kíkja á pínulitla krílið hann Jóhann Ása hennar Ilmar. Símanum hans Ingva var stungið í þvottavélina einn daginn svo við skruppum í Símann keyptum síma og fengum okkur ADSL og Skjá-sport sem var alveg bráðnauðsynlegt að Ingva mati. Við erum sem sagt líka komin með heimasíma ef einhver vill vita af því.
Annars er kominn hellingur af snjó hérna fyrir norðan svo það er greinilega kominn vetur. Gatan okkar fer að nálgast það að vera ófær en bíllinn hans Ingva kemst auðvitað allt, allavega með hann við stýrið;)
Talandi um bíla þá fór alveg rosalega í taugarnar á mér að horfa á fréttirnar um merkingar hjá gatnaframkvæmdum. Það er svo sem allt í lagi að benda á að þetta gæti verið betra en það er hvergi minnst einu orði á það að hugsanlega gæti fólk bara keyrt á (eða undir) löglegum HÁMARKShraða með nógu mikið bil á milli bíla og þá væri þetta miklu minna vandamál. Á mbl.is er frétt þar sem kemur fram að alvarleg umferðarslys eru 43,6% fleiri en á sama tíma í fyrra. Í lok fréttarinnar eru talað um þær vegaframkvæmdir sem á að gera. Það er gott mál að bæta samgöngurnar. Ég held bara að vegirnir hafi ekki versnað það mikið frá því í fyrra eða að umferðin hafi aukist það mikið að það sé hægt að kenna því um. Eru fréttamennirnir að gefa þau skilaboð að slys séu eingöngu vegakerfinu og merkingum gatnaframkvæmda að kenna? Hvað með að fólk aki miðað við aðstæður og taki t.d. ekki fram úr á stöðum þar sem sést ekki hvað er framundan? Hvað með að bílstjórarnir beri sjálfir smá ábyrgð á öryggi sínu og annarra í umferðinni?
Ég er bara orðin þreytt á því hvað Íslendingar virðast vera orðnir vanir því að allt sem fer úrskeiðis sé einhverju/einhverjum öðrum að kenna en þeim sjálfum.
(Ég er ekki að segja að ég geri þetta aldrei en vonandi ekki of oft.)
Nokkur dæmi:
Ef ökumaður keyrir á 20 km/klst yfir hámarkshraða og of nálægt næsta bíl á undan, kemur svo að gatnaframkvæmdum þar sem þarf að hægja á og keyrir aftan á bílinn fyrir framan þá er það vegna þess að gatnaframkvæmdirnar voru ekki nógu vel merktar svo hann vissi ekki að hann þyrfti að fara að hægja á (eða þá að helv. fíflið sem var að keyra hinn bílinn bara snarhemlaði allt í einu).
Ef nemandi lærir hvorki í tímum né heima og fellur á prófi þá er það vegna þess að kennarinn var ömurlega lélegur kennari eða prófið var allt of erfitt.
Ef Íslendingur er alltaf rekinn úr vinnu vegna þess að hann er svo húðlatur og á erfitt með að fá nýja vinnu með þessi "meðmæli" þá er það vegna þess að helv. útlendingarnir eru að stela vinnunni hans.
Ef einhver nennir ekki að hreyfa sig þá er það vegna þess að það er alltof mikið frost úti og það er bæði leiðinlegt og dýrt að fara í ræktina.
Auk þess heyrir maður stundum um fólk sem lenti (bara alveg óvart) í framhjáhaldi, fíkniefnum eða gjaldþroti eins og það hafi ekkert val um það.
Mér finnst að það vanti smá aga og ábyrgð hjá þessari þjóð.

miðvikudagur, október 11
Ingvi er fluttur loksins:) Hann rétt náði því að flytja inn fyrir veturinn því í gær byrjaði að snjóa. Það er pínu skrýtið að þurfa ekki að vera á endalausu flakki til að hitta hann en ég kvarta sko ekki;) Tengdamamma, tengdapabbi og tengdaamma komu líka um helgina og fóru svo aftur í gær. Við elduðum hreindýrakálfslæri á laugardagskvöldið fyrir þau og foreldra mína og litlu systur. Dýrindismatur þó ég segi sjálf frá en það hefði mátt vera aðeins lengur í ofninum, við vorum bara orðin svo svöng. Við vorum svo boðin í mat bæði í hádeginu og um kvöldið á sunnudaginn og kjöt í bæði skiptin og borðuðum svo afganginn af hreindýrinu á mánudaginn. Í gærkvöldi buðum við svo Nönnu í mat og elduðum lambakjöt með kartöflum og brúnni sósu. Ég held að mig langi í eitthvað annað en kjöt í kvöld.
þriðjudagur, september 26
Haustferðin var snilld, æðislegt labbveður miðað við árstíð og gott stuð á liðinu. Það eru nokkrar myndir á MA vefnum ef þið viljið skoða. Haldiði svo að kallinn hafi ekki bara eldað fyrir kellinguna sína, foreldra hennar og systur á sunnudaginn í hádeginu. Það þýðir heldur ekkert að geyma alla þessa villibráð bara í frystinum;) Minn var bara mættur þvílíkt hress í eldhúsið eldsnemma að morgni blístrandi að krydda gæsina og skella henni í ofninn ásamt einhverju gumsi. Ég reyndi nú að hjálpa aðeins til og skera niður grænfóður en ég var ekki alveg jafn morgunhress. Restin af deginum fór í að melta þennan dýrindis mat og kveðja Ingva. Hann er sem sagt bara svona hálf-fluttur, eitthvað af fötunum og dótinu hans er komið og það styttist alltaf í að hann komi til að vera:)