þriðjudagur, apríl 25
Hvað segið þið, er kominn tími á nýja færslu? Jæja þá.
Ég var bara í páskafríi. Fyrstu dagarnir fóru í almenna afslöppun, örlitla vinnu og erfiða jarðarför þar sem Kalli mágur hans pabba var jarðaður eftir árs baráttu við krabbamein. Á skírdag flaug ég svo vestur í algjöra afslöppun. "Nýi" trukkurinn hans Jóhannesar var keyrður upp á fjall og þá kom leiðinlegt veður og það sást ekki neitt svo við fórum bara niður aftur. Snjósleðinn hans Ingva var keyrður upp á fjall daginn eftir og þá kom leiðinlegt veður svo við fórum bara niður aftur. Reyndum ekkert meira að fara upp á fjall því það snjóaði bara svo stemmningin var eiginlega bara meira svona að kúra heima undir teppi og glápa á sjónvarpið. Reyndar nenntum við því ekkert svo við rúntuðum bara um Bolungarvík og næsta nágrenni. Á páskadag rúntuðum við svo til Akureyrar með stoppi í Miðhúsum sem er sveitin hans Ingva inn í Djúpi og stoppi til að skipta um dekk. Heima beið okkar lambalæri sem við borðuðum með bestu lyst alveg eins og við hefðum ekki borðað læri kvöldið áður og hamborgarhrygg í hádeginu. Svona á lífið að vera;) Ingvi keyrði svo heim til sín aftur á mánudaginn og ég lá bara í leti heima og borðaði páskaeggið mitt degi of seint. Mér var sem sagt skutlað heim frá Bolungarvík;)
Síðan var páskafríið bara búið og ég fór í vinnuna, svo fór ég næsta dag ekki í vinnuna og svo fór ég næsta dag í vinnuna. Þá var ég nú orðin alveg rugluð en ég vissi ekki hvert ég ætlaði þegar ég fattaði að ég átti ekki að mæta daginn eftir því það var komið helgarfrí. Nú er ég hins vegar búin að ná mér eftir aftur og kenni bara alla virka daga í þessari viku og ekkert rugl.
Valgerður kom brún og sæt heim úr 2 vikna æfingaferð til Kanarí og er að sjá um kosningar í stjórn skólafélagsins og fleiri embætti í MA. Kosningavikan er sem sagt núna með tilheyrandi kosningaáróðri sem felst aðallega í því að gefa samnemendum sínum sem mest sætindi eins skemmtilegt og það er fyrir kennara sem eru svo að reyna að fá þau til að sitja kyrr, þegja og einbeita sér að náminu;)
Næstu helgi er svo planið að Ingvi komi í heimsókn enda er þriggja daga helgi;)

föstudagur, apríl 7
ÉG ER KOMIN Í PÁSKAFRÍ OG MA VANN GETTU BETUR ;)
Ég er nú samt í vinnunni ennþá og á eftir að fara yfir nokkur verkefni í páskafríinu en það er nú allt í lagi því MA vann úrslitakeppni Gettu betur í gær. TIL HAMINGJU MA. Hljóðneminn er loksins kominn norður í MA eftir langt hlé. Horfði á keppnina í Kvosinni í MA og þar var sko stemmning hjá þeim sem fóru ekki suður:)
Getur þetta orðið nokkuð betra? Tja kannski ef kærastinn hefði ekki stungið af til Englands í morgun að horfa á eitthvað sem kallast fótbolti;) Ekki það að ég sé neitt fúl út af því, hann kemur víst aftur einhvern tíman. Svo stakk ég víst af í haust í tvær vikur að sleikja sólina í Tyrklandi þar sem símtöl eru fáránlega dýr svo hann á litla helgarferð til mekka fótboltans inni.
Lýsing á hugtakinu fótbolti fyrir þá sem ekki vita hvað það er:
Fótbolti er víst eitthvað þar sem menn hlaupa á eftir bolta, sparka í boltann og í lappirnar á hvor öðrum, eru dæmdir rangstæðir ef þeir eru þar sem þeir mega ekki vera. Dómarinn getur líka gefið mönnum gula og rauða spjaldið og þeir sem fá spjöldin eru alltaf ótrúlega hissa og vita ekkert af hverju þeir fengu svona spjald og allt verður brjálað. Svo eru skoruð mörk með því að sparka boltanum í einhvers konar net hjá hinu liðinu og það er einn í hvoru liði sem er bara að passa að hitt liðið skori ekki hjá sér. Liðið sem skoraði fagnar með því að reyna að drepa þann sem skoraði markið. Annað hvort kasta þeir sér á hann og reyna að kremja hann til bana eða faðma hann svo fast að hann nær ekki andanum. Þess vegna hlaupa þeir sem skora markið alltaf í burtu og reyna að láta þá ekki ná sér. Svo vinnur það lið sem skorar fleiri mörk.
Þeir sem horfa á fótbolta halda oft með öðru liðinu. Þeir drekka stundum bjór á undan leiknum til að hita sig upp, á meðan á leiknum stendur (ef þeir sulla honum ekki niður í látunum þegar liðið þeirra skorar) og eftir leik annað hvort til að fagna með sínu liði eða til að drekkja sorgum sínum. Svo kalla þeir dómarann sitt á hvað snilling eða helv. hálfvita þegar hann dæmir rangstöðu eða víti eða gefur mönnum rautt eða gult spjald, fer eftir því með hvaða liði þeir halda. Stundum hafa þeir líka áhyggjur af því að dómarinn sé blindur. Svo öskra þeir og þjóta upp úr stólunum ef liðið þeirra skorar. Það öskra samt fáir jafn mikið allan leikinn og þeir sem eru að segja þeim sem horfa á leikinn í sjónvarpinu hvað sé að gerast.
Jamm, fótbolti er spennandi og skemmtilegur leikur;)