þriðjudagur, júlí 25
Það er svo mikið búið að gerast síðan ég bloggaði síðast (enda kannski svolítið langt síðan) að ég bara veit ekki hvar ég á að byrja svo við skulum bara hafa þetta í punktaformi og byrja á byrjuninni.
- Próftíðin kláraðist loksins.
- Ótrúlega skemmtilegt 5 ára stúdentsafmæli þar sem gamli bekkurinn minn hittist og grillaði heima hjá foreldrum Ilmar 14.júní, árgangurinn fór í óvissuferð sem endaði svo í góðu geimi á Dátanum 15.júní og 16. júní var farið í Höllina ásamt hinum afmælisárgöngunum og djammað fram á nótt.
- Við stelpurnar (ég, Kitta, Katrín og Lára) gæsuðum svo Ilmi 16.júní. Hún var látin gefa fólki málsháttarkökur með "ekta Ilmar setningum" og selja ferðir til Bolungarvíkur á koss eða krónu á Glerártorgi, í bænum og í MA. Enduðum svo í heita pottinum á Hár og heilsu með freyðivín og sprite fyrir Ilmi óléttu og sendum hana svo í fótsnyrtingu á meðan við héldum áfram að sulla í pottinum.
- Fór í útskriftarveislu hjá Ingu Völu frænku 17. júní.
- Fór í sumarfrí 20.júní og stakk af daginn eftir til Bolungarvíkur.
- Fór í brúðkaup Ilmar og Jóns þann 24. júní. Reyndi að hjálpa til þegar ég gat dagana fyrir og gaulaði svo eitthvað með fimm fyrrverandi MA-kórs meðlimum, svaka flott.
- Fékk far suður með Hannesi, Láru og Sigga daginn eftir brúðkaup og var í Kringlunni og Smáralind í örfáa daga áður en ég flaug vestur á nettilboði.
- Hið ljúfa líf með Ingva mínum tók svo við næstu tvær vikurnar. Skruppum á Landsmót hestamanna og í kalda útilegu í Arnarfirði með Ilmi, Jóni, Siggu, Sigurjóni, Öldu, Bjössa og fleiri Bolvíkingum helgina eftir það.
- Flaug heim til Ak. 11. júlí og lá þar í 1 og hálfa viku upp í sófa hóstandi og hnerrandi eftir köldu útileguna, alveg toppurinn á sumarfríinu myndi ég segja...
Fór nú samt aðeins í sveitina og í búðir með Valgerði til að kaupa afmælisgjöf handa henni.
- Ingvi kom svo seinasta föstudag norður og við fórum á ættarmót í Skagafirði hjá fjölskyldu föðurömmu minnar. Flestir í þeirri ætt eru frekar lágvaxnir svo Ingvi passaði vel inní ;) Loksins var líka komið sumar og sólin skein bara alla helgina. Við vöknuðum kl 8 á sunnudagsmorgun og þá var ekki líft inn í tjaldinu lengur því það var orðið svo heitt þar inni.
- Fór vestur með Ingva eftir ættarmót. Við keyrðum í blíðunni alveg að stikna úr hita. Við komum við í Miðhúsum (sveitinni hans Ingva) á leiðinni og ... tataratatataaaa... VIÐ TRÚLOFUÐUM OKKUR. Erum ung og ástfangin og bæði komin með hring á puttann. Brúðkaupið mun nú samt fá að bíða örlítið lengur en það er á dagskrá einhvern tíman á næstu árum. Minni ykkur bara á það sem stendur efst á þessari síðu "Hvað liggur á? Það er hvergi kviknað í..."
- Ætlum að vera hér fyrir vestan fram að versló en þá munum við bruna til Akureyrar og djamma örlítið. Hvað gerist eftir það er ekki ákveðið en kemur líklega í ljós þegar kemur að því, æji fattaru hvað ég meina ;)