fimmtudagur, desember 20
Vááá hvað tíminn líður hratt. Mér finnst önnin rétt vera að byrja og svo kemur bara allt í einu jólafrí. Búið að vera brjálað að gera síðan í byrjun október svo ég hef varla stoppað til að anda. Búin að sitja tvær lotur í náminu mínu, fara í próf í sálfræði, skila tveim ritgerðum og einu verkefni, fara á haustþing kennara á Norðurlandi, skreppa til Bolungavíkur í haustfríinu, skreppa suður og hjálpa litlu systur að flytja, fara á árshátíð MA, fara á kóræfingar og syngja á jólatónleikum með Kvennakórnum, fara á hádegisjólahlaðborð með vinnunni, fara í brúðkaup, fara í mæðraskoðun, blóðprufu og sónar, fara á styttri útgáfu af foreldrafræðslunámskeiði hjá ljósmæðranemum, kenna nokkra tíma aukalega vegna forfalla, fara yfir um 700 verkefni frá nemendum og margt annað sem þarf að gera í vinnunni. Ég mæli ekki með 100% vinnu og 50% skóla þegar maður er óléttur. Þetta hefur svo sem reddast en mikið hrikalega er ég fegin að það er komið jólafrí. Næst á dagskrá er að skella sér í að koma íbúðinni í skikkanlegt horf fyrir jólahátíðina. Taka til, þrífa, hengja upp gardínur, kaupa náttborð o.fl. Svo á líka eftir að skrifa jólakort, kaupa jólagjafir, skreyta, baka, föndra, o.s.frv. Eða kannski bara að gera sem minnst, jólin koma hvort sem er. Þau komu í fyrra þegar ég var á hækjum og ekki búin að gera neitt til að undirbúa þau svo þau hljóta að koma núna líka:) Annars er það að frétta af bumbunni að hún bara stækkar og stækkar og krakkanum virðist finnast gaman að sparka. Hann hikar ekkert við að sparka í pabba sinn ef hann er að hreyfa sig á annað borð og það er bara gaman að því. En nú er ég farin að geyspa hérna fyrir framan tölvuna svo það er um að gera að fleygja sér upp í sófa og fá sér smá síðdegislúr.