miðvikudagur, september 22
Helga, Helga og Helga, úff. Hvernig í ósköpunum á ég að læra hver er hvað? En annars er allt bara gott að frétta. Ég ætla í sumarbústað með stúdentagarðagenginu um helgina. Það verður örugglega þrusufjör og það verður gott að komast aðeins í burtu frá krökkum sem spyrja af hverju svarið sé 1.0032 þegar ég veit ekki einu sinni hvaða dæmi þau eru að reikna ;-)
miðvikudagur, september 15
Líkamsrækt dagsins er að muna nöfn. Ég engist sundur og saman, svitna og stend á öndinni þegar ég er að reyna að muna öll þessi nöfn. Þetta kemur nú samt svona smám saman, allavega kann ég fleiri nöfn en í gær. Rakst á strák úr busabekknum mínum í skólanum í dag, sem betur fer er ég ekki að kenna honum. Heyrðu já, ég er sem sagt búin að hitta alla bekkina sem ég er að kenna og líst bara rosalega vel á þá. Fínir krakkar allt saman. Umsjónarbekknum mínum gekk eitthvað illa að finna umsjónarmann því þeir sögðu að stelpurnar tækju þetta alltaf að sér. Ég hló nú bara því þetta minnti mig á svo ótal marga hluti sem við stelpurnar í bekknum mínum í MA tókum að okkur að gera fyrir strákguttana þar. Fór á kennarafund áðan þar sem skiptingin á heiminum var afar áhugaverð, þ.e. Akureyri, Eyjafjarðarsvæðið, landsbyggðin og útlönd. Takið eftir að Stór-Reykjavíkursvæðið var flokkað í landsbyggðin. Akureyri, best í heimi. Algjör snilld, ekki satt?
sunnudagur, september 12
Vakna, knúsa litlu systur, borða, skríð upp í sófa og horfi á vídeó, borða, fer í sturtu, geri mig sæta (eins og þess þurfi eitthvað...), fullvissa mig um að ég líti þokkalega út, pússa skóna til öryggis, rölti út í bíl með hnút í maganum, keyri upp í skóla, sé fullt af krökkum á leið í skólann, fer út úr bílnum og niður í kvos, sest niður og anda léttar, hlusta á tónlist og ræðuna hans Jóns Más, hnúturinn í maganum kemur og fer eftir eigin hentugleika, fæ mér kaffi (samt eiginlega ekki kaffi því ég drekk ekki kaffi, heldur meira svona kleinu og eplasafa), tala við samkennara mína, fólk tínist út smám saman, bíð aðeins lengur og rölti svo út í Brekkuskóla á fyrstu kóræfingu mína hjá Kvennakór Akureyrar, líst bara ágætlega á kórinn, fer heim og fæ mér að borða, fer á netið, hendi mér upp í sófa og slaka á fyrir komandi átök...
fimmtudagur, september 9
Jæja nú verð ég að fara að bæta mig í þessu. Þetta gengur ekki lengur. Hvað hefur gerst síðan síðast, humm. Ég kvaddi vinkonur mínar sem héldu suður yfir heiðar að ná sér í menntun í þeirri virtu menntastofnun Háskóla Íslands, eða eitthvað. Svo leiddist mér svo mikið að ég skrapp suður síðustu helgi. Var aðallega í því að skutla systur minni og vinkonum hennar hingað og þangað en ég komst líka í leikhús á Rómeó og Júlíu sem var alveg ótrúlega skemmtileg sýning, fór í kaffi til Katrínar og innflutningspartý til Nönnu og svo fór ég í búðir með Ásrúnu, Steinunni, Valgerði og Theu. Keypti mér "kennarainniskó", þ.e. mjög góða Ecco-inniskó og skólatösku. Skemmtileg og góð ferð sem sagt. Er uppí skóla núna, svakafjör alveg hreint... Var að komast að því að ég er með 4T sem umsjónarbekk svo ég fæ ekki að fara í neina skálaferð. Algjör bömmer. Hins vegar held ég að þetta sé mjög skemmtilegur bekkur, 12 manna strákabekkur. Af hverju í ósköpunum er umsjónarbekkurinn minn strákabekkur? Getur einhver svarað því? Jæja, svona er lífið bara. Skólasetning á sunnudaginn og kennslan byrjar á þriðjudag, jibbý. Ég hlakka svo til að byrja, get ekki setið kyrr þessa dagana, soldið stressuð en þetta verður fínt. Annars er mest lítið að gerast, nema ég er að leita mér að kór og svo keypti ég mér kort í ræktinni og svo er bara um að gera að vera dugleg í vetur.