<$BlogRSDURL$>

laugardagur, október 29

Jæja, það varð víst eitthvað lítið úr flakki mínu suður þessa helgina þar sem fluginu var aflýst og ekki flogið fyrr en eftir hádegi í dag. Var frekar leið í gær að hafa misst af afmælisveislunni hennar Kittu því það er allt of langt síðan við stúdentagarðagellurnar höfum verið allar staddar á sama stað. Katrín hefur verið upp á Kárahnjúkum, Ilmur í Bolungarvík, Lára á stúdentagörðum, Kitta í Kópavogi, Nanna í Breiðholti og ég oftast fyrir norðan. Vonandi verður ekki of langt þar til við hittumst allar aftur.
Ég ákvað í gærkvöldi að fara í Pollýönnuleik og að það væri kannski bara ágætt að eyða einni helgi heima í rólegheitum (t.d. í að fara yfir verkefni, búa til verkefni og skipuleggja kennslu næstu vikur) þar sem ég stefni á flakk í einhverjar víkur næstu tvær helgar ;)

fimmtudagur, október 27

Afsakið bloggleysið þessa dagana það er bara búið að vera brjálað að gera. Skil ekkert af hverju, huhummm... Kannski það tengist eitthvað því að ég skrapp til Bolungarvíkur City um seinustu helgi svo ég er að vinna upp síðan þá og er að fara suður um helgina svo ég vil helst eiga sem minnst eftir þá.
Seinasta helgi var snilld og eins og ég bjóst við þá var troðið í mann alls konar góðgæti. Rjúpum, gæs, önd, lambakjöti, sviðum, pönnsum og skonsum. Ég fór sem sagt á villibráðarkvöld hjá Ingva, Jóni Atla og co á föstudagskvöldið og þeim félögum tókst merkilega vel að galdra fram dýrindis rétti á meðan ég og Ilmur skruppum í sund. Laugardeginum var eytt á rúntinum, í heimsóknum, pönnsukaffi og sundi áður en var farið í sviðaveislu og á ball með dúndurhljómsveitinni Í svörtum fötum. Sunnudagurinn fór svo í að reyna að komast heim en flugið mitt sem átti að fara 13:20 frestaðist og frestaðist og fór ekki fyrr en 18:00. Það gekk sem sagt svolítið erfiðlega hjá Bolvíkingunum að losna við mig því ég kom bara alltaf aftur en það tókst þó að lokum ;)
Verð svo mætt út á flugvöll eftir 24 tíma á leið til Reykjavíkur því Kitta vinkona á afmæli í dag og ætlar að halda upp á það annað kvöld. Til hamingju með afmælið gamla ;)

fimmtudagur, október 20

Eftir nákvæmlega sólarhring verð ég mætt út á flugvöll á leið til Bolungarvíkur með viðkomu í Reykjavík :) Brjálað að gera þangað til og enginn tími til að ná af sér öllum kökunum sem voru borðaðar á og eftir kynningarfundinn um helgina og í afmæliskaffi starfsmanna í gær :( Reyndar skilst mér að það eigi líka að troða í mig mat þar svo ég veit ekki hvar þetta endar ;)

laugardagur, október 15

Vissir þú að þetta er í 100 skipti sem ég skrifa eitthvað á bloggið mitt!
Í tilefni af því ætla ég að segja ykkur sem ekki vita að ég á kærasta sem heitir Ingvi og ég kynntist á Þjóðhátíð í Eyjum í sumar. Hann er frá Bolungarvík svo þennan vetur verður ennþá meira flakk á mér heldur en í fyrra.

Síðustu helgi fór ég sem sagt suður og hitti Ingva og flesta vini mína. Ingvi og Jón Atli náðu í mig á flugvöllinn og svo var farið í búðir, veiðibúðir að skoða byssur og svo skóbúðir í Kringlunni að ná í Ilmi. Við tókum svo Ásrúnu með út að borða á Pizza Hut og svo fórum við á Októberfest á Háskólalóðinni þar sem við hittum líka Kittu og Keith. Eftir Októberfest var labbað niður í bæ þar sem við hittum Láru og Hannes á Hressó. Ótrúlega gaman að hitta alla aftur. Laugardaginn var legið í leti og á laugardagskvöldið fórum ég, Ingvi og Jóhannes bróðir hans niður í bæ og fengum okkur að borða og fórum svo bara snemma heim ;) Sunnudagurinn fór í íbúðaheimsóknir til Kittu og Nönnu og ferð á Eldsmiðjuna að fá sér pizzu.

Úbbs, 5 mín í kynningarfund foreldra í MA svo ég verð að fara að rölta niður í Kvos. Sjáumst :)

miðvikudagur, október 5

Ég er að fara suður um helgina. Ætla að reyna að hitta sem flesta og gera sem mest. Ætla að reyna að hitta einhverja ma-inga og fleiri á föstudkv. og svo er íbúðaskoðunarferðir til Nönnu og Kittu nauðsynlegar.
Annars er lítið að frétta nema að ég fór í skálaferð með 1.A frá mánudegi til þriðjudags og það var bara ótrúlega skemmtilegt.
Er með hausverk svo ég er bara farin heim að sofa... eða kannski að fara yfir einhver dæmi svo það sé minna að gera um helgina... kemur í ljós...

This page is powered by Blogger. Isn't yours?