mánudagur, nóvember 29
Jæja, nú er árshátíðin búin, aðventan komin og jólin nálgast óðfluga. Ég hlakka til að hitta þá fáu sem hingað drullast yfir jólin. Það verður gaman að eyða meiri tíma en bara einni helgi með vinkonum sínum :-) Árshátíðin var næstum alveg eins og við var að búast, nema Hljómar voru að spila og moðsteikta lambið var allt í einu orðið grís. Skrýtið samt að vera á árshátíð, sitja hjá kennurunum og þekkja frekar fá andlit. Skemmtiatriðin voru samt snilld. Fullt af góðum tónlistaratriðum, príma sýndi magadans og fleira og fleira.
föstudagur, nóvember 26
Árshátíð Menntaskólans í kvöld, VÍÍÍÍÍÍÍíííííííí...
fimmtudagur, nóvember 25
Munurinn á eðlisfræðingum og stærðfræðingum er eftirfarandi:
Stærðfræðingur og eðlisfræðingur voru spurðir að því hvernig þeir færu að því að sjóða vatn. Báðir sögðu að þeir tækju pott, settu vatn í pottinn, settu pottinn á eldavélina, kveiktu undir og biðu svo bara þar til færi að sjóða. Næst voru þeir spurðir að því hvernig þeir syðu vatn ef það væri vatn í pottinum. Eðlisfræðingurinn sagðist setja pottinn á helluna og kveikja undir en stærðfræðingurinn sagði "Nú ég helli bara vatninu úr pottinum og þá er ég komin með vandamál sem búið er að leysa"
Svo eitt sinn var maður á ferð í loftbelg. Hann villtist af leið svo hann lækkaði flugið þegar hann sá annan mann á jörðu niðri, kallaði til hans og spurði hvar hann væri.
Maðurinn hugsar sig um í smá stund og segir svo "Þú ert í loftbelg".
Sá í loftbelgnum segir þá "Þú hlýtur að vera stærðfræðingur".
"Rétt er það, hvernig vissiru?"
"Nú ég spurði þig spurningar, þú hugsaðir þig um áður en þú svaraðir, svarið var alveg rétt en algjörlega gagnslaust"
"Þú hlýtur að vera í stjórnunarstöðu" sagði stærðfræðingurinn þá.
"Hvernig vissiru það?"
"Nú, þú veist ekki hvar þú ert eða hvert þú ert að fara, þú spurðir mig spurningar og ég gaf þér rétt svar, þú ert engu bættari en áður, en núna er það einhvern vegin mér að kenna..."

miðvikudagur, nóvember 24
Spurningar sem erfitt er að fá gáfuleg svör við:
-Hver er tilgangurinn með samræmdum stúdentsprófum?
-Hver er tilgangurinn með því að stytta (skerða?) nám til stúdentprófs í 3 ár, fyrir utan sparnað í menntakerfinu?
Athugasemd: Ef engin gáfuleg svör fást við síðustu tveim spurningum ættu menn að spyrja sig hvers vegna sé þá yfirhöfuð verið að hugsa um þessi mál í menntamálaráðuneytinu?!?
Pirr dagsins er ekki búið því ein góð spurning er eftir:
-Hvar er þessi eini rétti sem maður er alltaf alveg að fara að hitta þegar maður lætur spá fyrir sér?

föstudagur, nóvember 19
Alveg að koma helgi, enn einu sinni. Jesús minn hvað tíminn líður hratt. Bara 5 kennsluvikur eftir og alveg fullt af efni sem á eftir að fara yfir, en það reddast eins og allt annað ;-) Er að fara á ráðstefnu um stærðfræðikennslu á eftir 15-18 og líka á morgun frá 10-17, fjör hjá mér :-) Eitthvað svona bla bla sem virðist samt vera nokkuð áhugavert :-)
Hey þið, ég fæ líklega að kenna 4X á vorönn. Stæ 703 sem er fylkjareikningur, föll af tveim breytum og fleira. Gaman :-) :-) :-) Hét reyndar stæ 623 þegar við vorum í MA. Ég finn enga kennsluáætlun frá í fyrra svo ég er eiginlega bara á því að finna gömlu glósurnar mínar og nota þá kennsluáætlun ;-) Veit samt að teikningarnar mínar á töflunni verða aldrei jafn flottar og Níelsar teikningar :-( Svo verð ég að kenna stæ 203 í nokkrum bekkjum sem verður bara gaman :-)
Ef þið hafið ekki tekið eftir öllum brosköllunum (reyndar er einn fýlukall en það er samt ekkert sem ég er rosalega hnuggin yfir) þá vil ég bara láta ykkur vita að ég er í góðu skapi. Allavega eru fjórir búnir að koma með athugasemdir Í DAG um hvað ég BROSI mikið, bara gaman að því :-) :-) :-) Alveg ókeypis að BROSA og svo er það smitandi ekki satt ;-) Ert þú ekki brosandi núna?

mánudagur, nóvember 15
Í dag er einn af þeim fáu dögum sem mér finnst bara allt í lagi ef ég væri bara að kenna þar til ég væri sjötug...
sunnudagur, nóvember 14
Ætti ég að kenna 24 eða 30 tíma á viku næstu önn? Spurning um að eignast meiri pening eða vera latur...
Hvernig haldiði að þetta endi hjá grunnskólakennurunum? Haldiði að framhaldsskólakennarar fari í verkfall í byrjun desember ef grunnskólakennarar fá mikla hækkun? Vona ekki en...
Æ, best að fara að drullast til að gera eitthvað áður en afmæli gamla skóla byrjar klukkan tvö :-)

föstudagur, nóvember 12
LOKSINS er kominn föstudagur. Mig langar svo að leggjast bara upp í sófa og gera bara nákvæmlega ekki neitt þessa helgi, en því miður ekki hægt. Skemmtikvöld Kvennakórsins er í kvöld, ég þarf að fara yfir verkefni á morgun og haldið verður upp á afmæli gamla skóla á sunnudaginn.
Seinasta helgi var hinsvegar snilld. Fór suður á fimmtudegi og beint í afmælispartý hjá Kittu. Það voru bara við stelpurnar og við gátum sko alveg blaðrað þangað til ég veit ekki hvenær. Á föstudagskvöld fórum ég og Kitta og keyptum okkur kjúkling, alveg eins og í "gamla daga". Gaman að vera aftur að borða grillaðan kjúkling og franskar á görðunum. Seinna um kvöldið fór ég í afmæli til Sigurbjargar. Það var alveg ótrúlega gaman að hitta þetta lið aftur.
Daginn eftir fór ég í tveggja tíma bandý með háskólakórnum. Úff, ég var sko alveg búin. Með strengi í þrjá daga á eftir af því ég gleymdi að teygja almennilega. Teygjuæfingar, ekki gleyma teygjuæfingum, það getur verið mjög vont. Mér var nú samt ekki það illt að ég sleppti grímupartýinu sem var um kvöldið. Ég var bleikur bangsi og þá meina ég neonbleikur. Ætlaði sko greinilega ekki að tínast. Jæja en í þessu partýi voru margir skemmtilegir karakterar og búningar, t.d. negrar, jarðaber, ameríkanar, stórslys, býflugur, sólblómaakur, Kalli's angels, Mía litla úr múmínálfunum, Himmler, arabakona og síðast en ekki síst Karíus og Baktus sem voru að gefa öllum nammi og banna að bursta tennurnar. Getið séð myndir hér.
Á sunnudaginn var nú ekki mikið gert vegna strengja ;-) Einmitt, strengja. Fór samt í Kringluna með Kittu og skrapp í heimsókn til Ásrúnar og Steinunnar. Á mánudagsmorgun var haldið heim á leið og gekk það bara mjög vel nema hún elskulega litla systir gleymdi töskunni sinni á Blöndósi. Hún er reyndar búin að fá hana aftur núna svo allt er í góðu lagi.
Jæja, systir mín er búin í tíma svo ég er á leiðinni heim, bæjó.

þriðjudagur, nóvember 2
Gaman í vinnunni að búa til próf, múhahahahahahahahahahaha...