þriðjudagur, nóvember 29
Ég er bara í nokkuð góðu skapi í dag ef þið voruð að velta því fyrir ykkur. Ætla bara að skrifa stutt blogg til að láta ykkur vita hvað ég er að bralla þessa dagana því ég hef nóg annað betra við tímann að gera.
Ingvi kom um helgina, það var skemmtilegt. Ég kenndi marga tíma í gær og í dag, það var líka skemmtilegt. Ég hitti gamla MA-inga, þ.e. Kollu og Sigurbjörgu, í dag þegar þær voru að þvælast inn á kennarastofu í MA, alltaf gaman að hitta fólk sem maður hefur ekki séð lengi. Ingvi kemur á fimmtudaginn, ég hlakka til. Árshátíð MA er á fimmtudaginn, það verður stuð. Þá ætla ég að borða hellings helling af góðum mat og horfa á skemmtileg skemmtiatriði. Svo ætla ég að kenna á föstudaginn og fara á námskeið á laugardaginn. Vííííííííí... En í dag og í kvöld ætla ég að búa til heimadæmi og lausnir við prófum og fara yfir próf. Vúhú...
The end.

fimmtudagur, nóvember 24
Skemmtileg staðreynd ef ykkur leiðist og eruð að hanga á netinu af því þið hafið ekkert skemmtilegra að gera:
Ég datt á rassinn í morgun þegar ég var að kenna.
Sem betur fer voru bara 7-8 manns sem sáu það því ég var að hjálpa nemönd (Kitta ég veit að ég er kennari en þetta er bara svo fyndið orð) á aftasta bekk þegar það gerðist.

þriðjudagur, nóvember 22
Tilgangslaust blogg til að láta ykkur vita að ég er á lífi. Var að vinna helling í síðustu viku eins og venjulega. Gerði svo nokkurn vegin ekkert um helgina nema fara í mat til frænku minnar, kjafta við mömmu og vinkonur hennar þegar þær voru að baka og stela smá-kökum og borða greifapizzu (alltaf að láta Ilmi vita þegar maður borðar greifapizzu svo hún fari nú að koma í heimsókn). Svo er bara komin ný vika og þá er maður bara á fullu að kenna. Í næstu viku er svo árshátíð MA sem mér og maka mínum var boðið á í dag. Hlakka til að borða góðan mat í góðum félagsskap. Stundum er gott að vera kennari. Allavega verður það æðislegt í langa jólafríinu mínu þegar flest vinnandi fólk fær bara einn dag í jólafrí. MMmmmmmmmmmm.... Skrifa kannski eitthvað seinna einhvern tíman kannski. Bæjó.
P.S. ég náði að ganga frá báðum ferðatöskunum sem hafa verið á flakki í herberginu mínu síðustu fjórar eða fimm vikur

mánudagur, nóvember 14
Herbergið mitt er í rúst. En það er líklega bara fylgikvilli þess að búa í ferðatösku um helgar og vinna langt fram á kvöld þess á milli. Tek til næst þegar ég hef tíma, ég lofa :D
Fór sem sagt til Bolungarvíkur um helgina. Flaug til Reykjavíkur og fór yfir próf og borðaði (of)kryddaðan hamborgara á flugvellinum á meðan ég beið eftir fluginu vestur. Ingvi kom svo og náði í mig á flugvöllinn nýklippta og sæta. Ógeðslega ánægð með nýju klippinguna mína. Er komin með stutt dökkt hár ef þið hafið ekki séð mig nýlega. Um kvöldið horfðum við á Idol í Tungu og fórum svo heim til Ilmar og Jóns Atla og spiluðum við þau og Ödda. Laugardagurinn fór í að gera ekki neitt, þ.e.a.s. aðallega að rúnta, liggja upp í sófa og kjafta. Á laugardagskvöldið skelltum við okkur á árshátíð Orkubús Vestfjarða sem haldin var á hótelinu á Ísafirði. Þar borðuðum við góðan mat, söngheftið var sungið á 5 mín og ég vann töfrasprota í happdrættinu, vúhú. Nenntum svo ekki á ball í Bolungarvík, sem betur fer kannski því þar voru einhverjir rugludallar sem réðust á lögguna með skóflu. Á laugardaginn flaug ég suður þar sem ég fékk Hannes til að fara með mér á Subway og kjafta við mig og sýna mér myndir þangað til ég flaug norður aftur ;)
Nú er ég bara í vinnunni. Búin að kenna mína sjö tíma í dag og er á leið heim að fara yfir einhver verkefni, vúhú. Er að spá í að vera heima um næstu helgi svo kannski maður taki líka upp úr töskunni og gangi frá henni svona einu sinni ;)

fimmtudagur, nóvember 10
Hæ hæ. Stutt blogg í tilefni smá pásu. Fór suður um seinustu helgi enda ekki annað hægt en að bregða sér af bæ þegar maður fær frí á föstudegi og mánudegi. Ótrúlega skemmtileg helgi. Mótmælti skerðingu náms til stúdentsprófs á þriðjudaginn ásamt hinum kennurunum. Fengum nokkra nemendur með okkur og gengum í mótmælagöngu niður á Ráðhústorg. Fórum svo upp í skóla þar sem frú menntamálaráðherra kom og tók á móti mótmælaskjali og undirskriftum kennara. Fer í klippingu á eftir og þá fær sko lubbinn að fjúka. Fer til Bolungarvíkur um helgina. Ég hlakka til. Farin að fá mér að borða áður en ég fer á fund. Bæjó.