<$BlogRSDURL$>

fimmtudagur, júlí 22

Vinna, borða, reikna, sofa, vinna, borða, reikna, sofa, útilega, vinna, borða, afmælisveisla, sofa, vinna...
Svona er líf mitt núna þessa dagana. Flakka eitthvað um hverja helgi. 11. júlí skrapp ég á Landsmót UMFÍ á Sauðárkróki rétt til að sjá systur mína hlaupa og hjálpa til við að taka niður tjaldið ;) Seinustu helgi fór ég í Þrastarskóg með kórnum, geggjað fjör. Ég fékk jeppann hans pabba lánaðan og ég, Sigrún og Siggi brunuðum yfir Kjöl. Ég hef aldrei áður keyrt Kjöl svo þetta var svaka stuð fyrir utan það að Lára komst ekki með, algjör bömmer. Svo á morgun verður amma mín 75 ára og er búin að bjóða okkur í ferð í Skagafjörðinn um helgina. Reyndar eru Ólympíuleikar mælingamanna annað kvöld og algjör bömmer að missa af þeim. Þar er m.a. keppt í sleggjukasti með alvöru sleggju, hver er fljótastur að draga inn 50 m málband og svo frekar huglægari greinar eins og að giska á fjarlægð og hæðarmismun milli tveggja hæla. Greinilega svaka stuð ekki satt. Svo er borðuð pizza og drukkinn bjór. Þetta er fjórða sumarið mitt sem mælingamaður og ég hef bara einu sinni komist á ólympíuleika sem er skandall. Jæja, ég er farin að gera eitthvað skemmtilegt. Gengur ekki að hanga inni í tölvunni í þessu góða veðri :)

föstudagur, júlí 9

Langt síðan síðast, verð að fara að bæta mig í þessu ;) Hvað er búið að gerast síðan síðast, hummm. Ég fór í útilegu með Ásrúnu, Steinunni, Elvu, Jónsa, Jóni Orra, Rögga, Elís, Sigurbjörgu og Nonna um síðustu helgi. Tjölduðum á Hólum í Hjaltadal á föstudaginn og flest okkar sváfu þó nokkuð þrátt fyrir kulda. Við fórum á sjóstöng og sigldum í kringum Drangey á laugardaginn, fórum svo í sund og grilluðum. Að sjálfsögðu var drukkið á laugardagskveldið, og svo vöknuðum við í svitabaði á sunnudagsmorguninn kl. 8. Sólin var örugglega búin að skína síðan 4 og það var orðið vel heitt og loftlaust inni í tjaldinu. Rifum okkur bara úr fötunum, opnuðum smá út og héldum áfram að sofa. Þegar við loks drulluðumst á lappir fórum við nú ekki langt, bara rétt út fyrir tjaldið og lágum þar í sólbaði. Að meðaltali var hitinn í tjaldinu báðar næturnar sem sagt bara nokkuð góður ;) Á leiðinni heim stoppaði ég aðeins á ættarmóti sem var í sveitinni þessa helgi, reyndar flestir farnir en hvað með það. Allavega ekki hægt að saka mig um að hafa ekki mætt. Horfði sem sagt á úrslitaleikinn í sveitinni og var hundfúl yfir að Grikkir höfðu unnið svo ég fór bara heim að sofa. Þessi vika er svo bara búin að líða alveg ótrúlega hratt. Passlega mikið að gera og alveg frábærlega stórkostlegt veður eins og er alltaf hérna á Akureyri. Ég er sko komin með bóndabrúnku. Er með gleraugnafar, peysufar, tvenn bolaför og far eftir hlírabol, frábært. Svo er restin af líkamanum bara skjannahvítur, bömmer. Valgerður, pabbi og mamma eru á leið á Landsmót UMFÍ á Sauðárkróki um helgina þannig að ég hef pleisið út af fyrir mig, jibbý. Ég þarf samt að vinna smá um helgina, druslufólk sem getur ekki haft runnana sína innan lóðamarka. Það er samt búið að bjóða mér í tvö partý um helgina, því miður eru bæði fyrir sunnan. Held samt að ég bíði með suðurferðir þangað til meiri þörf verður á þeim, þ.e.a.s. þegar allar vinkonur mínar verða farnar suður aftur. Fer líka í útilegu helgina 16.-18. júlí með kórnum. Allt í lagi að tolla heima svona eina helgi. Er ennþá ekki búin að ganga alveg frá draslinu mínu og svo er ég sko a spara, huhummm ´hóst´ huhummm.
Mér er hætt að finnast fyndið að ég sé að fara að kenna, þetta er orðið of raunverulegt. Fékk póst og var beðin um heimilisfang svo hægt væri að senda mér bækurnar. Best að fara að lesa og reikna svo maður geti nú svarað gáfulegu spurningum nemenda sinna. Ef þau koma hins vegar með bjánalegar spurningar sem tengjast efninu ekkert þá gaf Hannes mér gott ráð. Bara segja að þau viti ekki nóg um samfelldni rauntalna til að skilja þetta :) Gæti jafnvel verið að ég noti það við gott tækifæri.

This page is powered by Blogger. Isn't yours?