<$BlogRSDURL$>

miðvikudagur, apríl 27

"Merhaba"(Halló)
Ég er að fara til Tyrklands. Beint flug frá Ak svo ég þarf ekki að fara suður yfir heiðar, jibbý. Það er samt um tveggja tíma keyrsla frá "hava alani" (flugvöllur) þar sem við lendum og til Marmaris þar sem við verðum svo ferðalagið tekur um 8 klst. Krakkarnir eru 140 og eitthvað og svo fá Stefán Þór og Unnar Þór líka að fara með. Ég og Unnar verðum á sama "oda" (herbergi/íbúð) því Stefán Þór tekur konuna sína með og það eru bara tvö kennara-"oda". Meira um það seinna:)

Annars gengur lífið hér bara sinn vanagang. Kenna, borða, sofa, kenna, borða, sofa o.s.frv.

mánudagur, apríl 25

Sumar og sól ásamt einni vel valinni setningu, "Nei, mig langar ekkert í frían Brynjuís. Borða ekki svoleiðis þannig að gleymið þessu bara og farið að læra..."

föstudagur, apríl 22

Var að læra geggjað skemmtilegt spil um daginn sem heitir SET og ákvað að deila því með ykkur. Það er sem sagt svona spilastokkur þar sem spilin geta haft þrjú mismunandi form, þrjá mismunandi liti (rauðan, fjólubláan eða grænan), þrjár mismunandi fyllingar (tómt, röndótt eða fyllt) og fjöldi formanna getur verið 1,2 eða 3. Svo eru lögð 12 spil á borðið og maður þarf að finna þrjú spil þ.a. annaðhvort hafa þau öll eins form eða ekkert eins, öll sama lit eða ekkert sama lit o.s.frv. Geggjað stuð og heilinn fer sko alveg á fullt svo þetta er góð upphitun fyrir próf ;-) Því miður fæst SET ekki á Íslandi en þá er bara um að gera að panta á netinu.
Getið skoðað og prófað hér.

miðvikudagur, apríl 20

Tyrkland, here I come! Útskriftarferð með yfir 100 tvítugum gemlingum og tveim öðrum kennurum, jibbý! Meira um það síðar.

Fór suður seinustu helgi og var mjög menningarleg. Ég fór á tvenna tónleika og horfði á söngvakeppni framhaldsskólanna í sjónvarpinu. Siggi fór á kostum í Töfraflautunni, Eyrún Lárusystir stóð sig eins og hetja í söngvakeppninni og það var ótrúlega gaman að fá loksins að heyra Háskólakórinn syngja öll gömlu góðu lögin. Hef aldrei setið út í sal og bara hlustað. Langaði samt bara upp á svið og syngja með.
Fór aðeins út á lífið á föstudagskvöldið eftir Töfraflautuna með Hannesi, Sigga og fleira fólki úr HÍ-kórnum sem voru að djamma með einhverjum Svíum. Daginn eftir fór ég í bandý með kórnum og komst að því að ég er sko alls ekki í nógu góðu formi en því verður reddað síðar ;-) Á sunnudaginn var ég með nokkra marbletti, strengi í bakinu og hékk heima hjá Láru og fór yfir verkefni meðan hún var að læra. Minnti mann pínu á gömlu góðu þegar við bjuggum hlið við hlið. Sko ekki marblettirnir heldur að sitja og læra saman (eða ég að vinna í þessu tilfelli). Frábær félagsskapur alla helgina þótt ég hafi ekki náð að hitta nærri því alla sem ég vildi.

Sumardagurinn fyrsti er á morgun svo ég segi bara Gleðilegt sumar!

fimmtudagur, apríl 14

Búin að panta flug suður um helgina. Ætla á tónleika Háskólakórsins á su og á Töfraflautuna á fös. Annars fer helgin bara í að trufla háskólastúdenta sem ættu að vera að læra. Lofa samt að trufla ekkert mikið, svolítið ósamræmi að segja krökkunum sem ég er að kenna að læra um helgina og fara svo sjálf og trufla aðeins eldri krakka þegar þeir eru að læra það sem einhver annar sagði þeim að læra! Eða e-ð ;)

þriðjudagur, apríl 12

Allt að gerast. Fór á leikritið Stundarfriður á Melum á föstudaginn, söng fyrir forsetann í gær, ætla að sjá Ríginn, leikrit MA og VMA, í kvöld og fara á tónleika á miðvikudagskvöld. Annars er ósköp lítið að frétta. Ratatoskur (opnir dagar í MA) var í dag og í gær svo ég er búin að hafa smá tíma til að fara yfir verkefni, skipuleggja og anda þar sem ég þurfti sama og ekkert að kenna.

This page is powered by Blogger. Isn't yours?