<$BlogRSDURL$>

föstudagur, maí 25

Prófin eru byrjuð en ég er að spá í að skella mér vestur með kallinum um helgina. Aðeins að slaka á svona í upphafi próftíðar. Fyrsta prófið hjá mér er hvort eð er ekki fyrr en á þriðjudag. Annars er lítið að frétta. Um seinustu helgi skrapp Ingvi vestur (eins og helgina þar á undan, sauðburður skiljiði) og tengdó kom norður. Þau eru svo samstillt þessar elskur;-) Svo er bara rétt rúmlega mánuður í að við fáum íbúðina okkar afhenta, ég hlakka svo til :-) Búin að skoða IKEA bæklinginn og ákveða hvað ég ætla að kaupa og hvar það á að vera. Ingvi má ráða hvað verður í bílskúrnum, hehehe. Nei nei, ég segi honum bara ekkert hvað þetta kostar, set svo bara eitthvað smá Liverpool dót einhvers staðar og svo eigum við sófa sem hann getur legið í að horfa á leiki og þá verður hann ánægður :-D

þriðjudagur, maí 15

Á landið að vera eitt kjördæmi?

Ég las frétt á mbl um misvægi atkvæða í kosningunum og svo á aðra frétt á vísi.is um hvernig úrslit kosninganna hefðu verið ef allt landið væri eitt kjördæmi.

Ég er sammála því að það er fáránlegt að stjórnin hafi fengið 48,3% atkvæða og samt fengið meirihluta. Heyrði líka einhvers staðar að á tímabili hefði Framsókn bara þurft að bæta við sig 3 atkvæðum í einhverju kjördæminu og þá hefði stjórnin fallið sem er frekar öfugsnúið. Hins vegar hef ég á tilfinningunni að ef landsbyggðin hefði færri þingmenn þá væri ansi lítið gert fyrir landsbyggðina. Nokkrir hafa bloggað um fréttina á mbl og sumir þeirra eru hneykslaðir á því að atkvæðin í norðvesturkjördæmi gildi næstum tvöfalt á við atkvæði í suðvesturkjördæmi. Örfáir hneykslast líka á því hvað er alltaf verið að gera mikið fyrir landsbyggðina. Allir þessir vegir og göng og fleira. Uuu... kannski af því að vegalengdirnar eru miklu meiri og fjallvegirnir verða stundum ófærir á veturnar. En einmitt útaf þessu viðhorfi þarf landsbyggðin fleiri þingmenn en t.d. Reykvíkingar. Það er nefnilega ekki fyrr en ríkir þjóðarsátt (er þetta ekki tískuorð núna) um að efla landsbyggðina sem hægt er að breyta þessu. Ég held líka að það þegar landbyggðin eflist þá muni Reykvíkingar líka njóta þess og það þarf ekkert endilega að gerast á kostnað borgarinnar.

Hvað finnst ykkur?

föstudagur, maí 11

Ég var að testa prófið á xhvad.bifröst.is.

Ef maður er mjög sammála öllu þá fæst:

Stuðningur við Sjálfstæðisflokk: 62.5%
Stuðningur við Framsóknarflokk: 60%
Stuðningur við Samfylkinguna: 100%
Stuðningur við Vinstri-Græna: 25%
Stuðningur við Frjálslynda flokkinn: 92%
Stuðningur við Íslandshreyfinguna: 80%

Ef maður er mjög ósammála öllu fæst:

Stuðningur við Sjálfstæðisflokk: 37.5%
Stuðningur við Framsóknarflokk: 40%
Stuðningur við Samfylkinguna: 0%
Stuðningur við Vinstri-Græna: 75%
Stuðningur við Frjálslynda flokkinn: -12%
Stuðningur við Íslandshreyfinguna: 20%

Svo hafði ég ekkert að gera svo ég testaði einstakar fullyrðingar hjá flokkunum
(S er mjög sammála, Ó er mjög ósammála og ef þeir taka ekki afstöðu fæst -)

D: S Ó S S Ó Ó S - S - -
B: S - S - S - - Ó - Ó -
S: - S S - S - S - - - -
V: Ó Ó Ó Ó S S Ó - - Ó -
F: - - S S S S S S S S S
Í: Ó - S - S - S - - S -

(Það er reyndar ekki hægt að styðja Frjálslynda meira en 92% sama hverju maður breytir!)
Samkvæmt þessu þá hafa Samfylkingin og Framsókn engin ágreiningsmál og Samfylkingin á meira sameiginlegt með Sjálfstæðisflokknum heldur en Vinstri grænum. Það eina sem Vinstri grænir og Sjálfstæðisflokkurinn eru sammála um er að hefja ekki viðræður við Evrópusambandið. Það sést líka hvað Frjálslyndir, VG og Sjálfstæðisflokkurinn taka afstöðu til miklu fleiri af þessum málum sem þarna eru heldur en hinir flokkarnir.
Mér finnst líka undarlegt að prófið sé samið þannig að Samfylkingin og Frjálslyndir séu mjög sammála öllu sem þeir taka afstöðu til. Er ekki hægt að snúa einhverjum fullyrðingunum við og hafa t.d. einkavæðing er óæskileg í heilbrigðisgeiranum í stað einkavæðing er æskileg í heilbrigðisgeiranum.
Annars er ég ekki að taka þetta próf mjög alvarlega ;-)

En svona til gamans þá fékk ég eftirfarandi niðurstöðu:

Stuðningur við Sjálfstæðisflokk: 12.5%
Stuðningur við Framsóknarflokk: 60%
Stuðningur við Samfylkinguna: 75%
Stuðningur við Vinstri-Græna: 68.75%
Stuðningur við Frjálslynda flokkinn: 23%
Stuðningur við Íslandshreyfinguna: 50%

Skoðanir þínar eru í mestu samræmi við skoðanir Samfylkingarinnar!
Veit ekki með það. Samræmast skoðanir mínar betur Samfylkingunni því ég er sammála þeim í 3 fullyrðingum af 4 hjá Samfó en "bara" 5-6 af 8 hjá VG?

mánudagur, maí 7

Ég er á lífi;)
Hér er smá "update" af því sem ég hef verið að gera í nokkrum brotum því Blogger er með stæla.
Um jólin skruppum við vestur til Bolungarvíkur. Lögðum af stað 22. des. en þann dag varð Stebba 25 ára svo við náðum aðeins að knúsa hana og fá kökur á afmælisdaginn. Á Þorláksmessumorgni um kl. 6 þurfti ég að fara á klósettið, hoppaði þangað á hækjunum og svo þegar ég ætlaði að standa upp aftur þá varð rafmagnslaust og allir sofandi í húsinu. Það var frekar undarleg lífsreynsla að sitja á klósettinu í myrkrinu með hækjurnar í höndunum og spá í hvað ég ætti að gera. Að lokum stóð ég nú bara upp og notaði svo hækjurnar sem blindrastafi til að komast að hurðinni og þar stóð ég og kallaði á Ingva sem kom og lýsti mér með gemsanum sínum svo ég kæmist aftur inn í rúm. Á Þorláksmessu keyrðum við svo inn í Miðhús og eyddum jólunum þar með fjölskyldunni hans Ingva. Fórum á sjúkrahúsið á Ísafirði 27. des. létum mynda öklann, ristina og tærnar og fengum að vita að það væri ekkert brotið. Komum aftur norður milli jóla og nýárs og fórum í brúðkaup til Sigurbjargar og Nonna 30. des. Á gamlárskvöld var eldað hreindýr og pabbi, mamma og Valgerður voru hjá okkur. Nágranninn flippaði í flugeldasprengingum svo við flúðum inn vegna reyks rétt eftir kl. 12. Við héldum svo gamlárspartý og fullt af skemmtilegu fólki mætti á svæðið.

Skólinn byrjaði svo aftur og ég skipti um stofur við nokkra kennara svo ég var eiginlega alltaf í sömu stofunum og þurfti ekki að hoppa stiga nema fyrsta daginn. Ég sat bara með lappirnar upp á borði og krakkarnir voru að reikna og komu og spurðu mig ef þau skildu ekki eitthvað. Svo komu próf og ég þrjóskaðist við að hoppa á milli þegar mínir nemendur voru í prófum og svara spurningunum sem ég mátti svara. Eftir hádegi þriðjudaginn 16. jan. fór ég svo til læknis sem sagði að þetta væri sko ekki tognun heldur eitthvað miklu meira. Hann sagði að ég væri með gigt, gaf mér sterk bólgueyðandi gigtarlyf og vottorð um að ég væri algjörlega óvinnufær í tvær vikur eða fram að næsta tíma hjá honum. Í næsta tíma sagði hann að ég yrði líklega óvinnufær næstu þrjár vikur líka. Ég sat sem sagt bara heima upp í sófa, góndi á sjónvarpið, púslaði (eitt 500 kubba, eitt 1000 kubba og eitt 3000 kubba), las, reyndi að blogga og knúsaði Ingva þess á milli enda var hann þvílíkt góður við mig. Kitta óvinnufæra kom í heimsókn og Ingvi bakaði pönnsur fyrir okkur.

Byrjaði að vinna um miðjan feb. þegar ég var farin að geta rölt um og var komin í fulla vinnu um miðjan mars. Fór svo í brúðkaup hjá Begga frænda og Hafdísi á afmælisdaginn minn og söng einsöng á tónleikum með Kvennakórnum helgina eftir. Ég og Ingvi fórum vestur um páskana og unnum kassa af bjór ásamt Adda vini hans í Kjallarakeppninni sem er spurningakeppni á Kjallaranum. Keyptum okkur svo bílskúr í lok apríl. Vorum bara svo heppin að það fylgdi íbúð með;) Íbúðin er sem sagt 4 herbergja (3herb+stofa) á þriðju hæð í blokk í Skarðshlíð og var ég búin að segja að það er bílskúr líka. Fáum afhent mánaðarmótin júní/júlí svo ef það er einhverjum sem finnst gaman að halda á dóti upp á 3ju hæð þá endilega hafið samband;)

This page is powered by Blogger. Isn't yours?