föstudagur, apríl 30
Nú eru liðnir einnoghálfur dagur síðan ég kom út úr síðasta prófi og síðan þá hef ég lesið nákvæmlega 40 bls. af glósum. Sem væri svo sem vel af sér vikið nema að það er svo lítið á hverri síðu að það tók bara þrjá tíma eða svo... Hins vegar er ég ekkert bara búin að liggja í leti, nei nei alls ekki, huhummm. Ef þú heldur að dugnaður minn síðustu daga hafi falist í því að þrífa heima hjá mér þá þekkiru mig sko greinilega ekki. Fyrr mundi ég lesa allar skólabækurnar mínar þrisvar heldur en að þrífa, þó svo ég neyðist til þess örsjaldan;) Sko dugnaður minn auk þess að lesa þessar 40 bls. felst í því að ég er búin að skoða öll blogg sem ég mögulega finn, fara í badminton og leigja spólu með Nönnu, fá lánaða mestu sápuóperuþætti ever hjá Láru, þ.e. Felicity og glápa á fyrstu þrjá þættina eða svo og fara með bílinn í smurningu og skoðun. Sem minnir mig á það að ég ætti kannski að útskýra (hahaha skrifaði óvart útskúra) hvað málið sé með "Hvað liggur á, það er hvergi kviknað í" kommentið. Sko ég fékk þetta sem málshátt í páskaeggi í fyrra og mamma dó úr hlátri og ætlaði aldrei að geta hætt að hlægja því henni fannst þetta passa svo vel við mig. Já allavega fór ég að hugsa um þetta í dag þegar ég fór með bílinn í skoðun því aftasti stafurinn í númerinu er 2 sem þýðir að það á að skoða bílinn í febrúar og svo hefur maður tvo mánuði eftir það áður en þeir klippa númerin af. Í dag er sem sagt 30. apríl, you do the math. Og svo þegar ég fer að hugsa um það þá sótti ég um sumarvinnuna mína daginn sem umsóknarfresturinn rann út, go Hóa!!! Svo hélt ég að andlitið myndi detta af Ásrúnu og Steinunni fyrstu önnina okkar í HÍ þegar ég fékk tölvuna hennar Steinunnar lánaða um kl. 10 kvöldið fyrir próf til að ná í glósurnar úr áfanganum og renna yfir þær. Kunni samt eiginlega allt og var bara að spá hvort nokkuð hefði gleymst. Örugglega til fullt af fleiri svona sögum af mér...
Ætti kannski að fara að borða eða læra eða eitthvað... prófið er samt ekki fyrr en á mánudag sem þýðir að ég hef næstum tvo daga í viðbót. Nenni ekki að læra í kvöld, vakna bara snemma á morgun, huhumm... Hendi mér kannski bara upp í sófa núna eða kannski er komin tími til að taka til... það er spurning!!!
Sjáumst síðar...

fimmtudagur, apríl 29
Ætli það sé hægt að koma skilaboðum til undirmeðvitundar fólks í gegnum netið? Það má alltaf reyna...
Ég var í prófi áðan. Það er hugsanlegt að ég nái því, fer bara eftir hvernig þeir gefa fyrir... En miðað við önnur fög sem ég hef náð, t.d. tvinnfallagreiningu, þá kunni ég bara slatta í þessu.
Krít 2005
Svo þarf ég ekki nema 4. Þetta reddast, hefur alltaf gert það hingað til...
Krít 2005
Held bara að einhver hafi gefið mér langvarandi kæruleysispillu í byrjun vetrar eða kannski flutti metnaðurinn minn bara norður fyrir heiðar og ég flutti út frá samviskunni minni... Gæti líka verið að ég sé bara komin í einhverja tilraunastarfsemi fyrir Háskólann sem nefnist "Hversu lítið þarf að læra til að ná fögum í HÍ".
Krít 2005
En allavega ef ég hef náð þessu prófi, sem gæti alveg gerst, þá er ég bara 3 prófum frá B.S. prófi. Það eru allt stærðfræðinámskeið fyrir verkfræðinga og ég fer nú andsk... ekki að falla í þeim ;)
Krít 2005
Nú langar mig bara í bjór, það er of langt að bíða eftir próflokum og hvað þá eftir Krít 2005. Kórinn fór í gær á kaffihús svo það er ekki hægt að plata þau eða hvað!!! Allavega ef einhverjum langar að gera eitthvað í kvöld þá er ég til. Næsta próf er ekki fyrr en á mánudaginn ;)
Krít 2005 Got the message?

miðvikudagur, apríl 28
Vissuð þið að létt-drykkjarjógúrt inniheldur fleiri kaloríur en drykkjarjógúrt... Fáránlegt. Og Lite-bjór inniheldur færri kaloríur en undanrenna ;)
Kannski maður fari bara að drekka Lite í staðinn fyrir eplasafa, kók og undanrennu, örugglega hægt að gera það að vinsælum megrunarkúr... Spurning hvernig Honey-Nut-Cheerios bragðast með bjór útá !!!
Kannski maður fari bara að drekka Lite í staðinn fyrir eplasafa, kók og undanrennu, örugglega hægt að gera það að vinsælum megrunarkúr... Spurning hvernig Honey-Nut-Cheerios bragðast með bjór útá !!!
þriðjudagur, apríl 27
Guði sé lof fyrir að stúdentar í raunvísindadeild þurfa bara að fá 4 til að ná... Fjármálaafleiður eru greinilega ekki mín sterkasta hlið. Svo var ég að spá í að fara í tryggingastærðfræði sem byggir mikið á þessum áfanga, puff. Hætt við. Kenni bara í MA til æviloka, verð svona eins konar blanda af Ásmundi og Níelsi nema bara kvenkyns :)
Reyndar væri þetta kannski ekki svona slæmt ef ég hefði lært eitthvað í vetur en ekki verið alltaf á djamminu með kórnum... en prófið er nú ekki fyrr en á fimmtudag þannig að það er enn nægur tími.
P.S. ég er ekki að slóra því ég er bara að bíða eftir prentaranum

mánudagur, apríl 26
Gleymdi að segja ykkur að ég var (vonandi) í seinasta tímanum mínum í HÍ í dag... Skrýtin tilhugsun því hann var alveg eins og allir aðrir tímar í þessum skóla, þ.e. ég hélt að ég myndi fá verkefnið mitt tilbaka en kennarinn var ekki búinn að fara yfir það. Hann sýndi okkur hins vegar lausnina við því þótt ekki allir væru búnir að skila, þeir voru bara reknir út. Svo fór náttlega fullt af tíma í að tengja tölvuna og svo var eitthvað vitlaust í forritinu og hann var hellings tíma bara að leita að villum og laga þær. Svo hringdi síminn hjá kennaranum og hann fór út til að tala í hann. Algjörlega tilgangslaus tími því hann setur þessar lausnir á netið... ALDREI AFTUR :) :) :)
Næsta ár verð ég kennari og ég vona að tímarnir hjá mér verði betri en þetta... 7 9 13...
Næsta ár verð ég kennari og ég vona að tímarnir hjá mér verði betri en þetta... 7 9 13...
Jæja, nú er komið að því. Ég er byrjuð að blogga en lofa samt engu í sambandi við hversu oft það verður. Ég er eins og þið sjáið á fullu í próflestri...