laugardagur, maí 29
Gleymdi að láta ykkur vita að ég náði öllum prófunum svo að ég er að fara að útskrifast, liggaliggalálá... Er búin að vera að pakka öllu draslinu mínu niður svo íbúðin mín er ógeðslega tómleg núna. Svo er Lára líka farin heim þ.a. það er enn tómlegra. Í gær var seinasta kvöldið okkar sem nágrannar og að sjálfsögðu héldum við upp á hvað vetur er búinn að vera frábær. Takk Lára fyrir að hafa verið frábær nágranni :)
fimmtudagur, maí 27
Hæ aftur allir saman. Var að koma frá Ljubljana og Feneyjum í gærkvöldi og var eiginlega bara að vakna fyrir 2 tímum sem þýðir að ég svaf í FJÓRTÁN tíma í nótt. Þetta var alveg æðislega skemmtileg ferð. Byrjaði á 20 tíma ferðalagi með 5 tíma stoppi á Stansted flugvelli þar sem var svo gott veður að við sátum bara úti í sólbaði og sungum. Á fimmtudeginum var það sem kallast óhappadagur Hóu. Sá dagur byrjaði á kóræfingu og svo fórum við í skoðunarferð um Ljubljana. Óhöppin byrjuðu eiginlega strax því þegar ég var eitthvað að tala við krakkana ÁÐUR en við lögðum af stað þá var ég eitthvað að labba afturábak og datt um blómapott. Blómapotturinn hrundi náttlega líka um koll og allir dóu úr hlátri og ég auðvitað líka því þetta gerðist svo hægt að það var eins og slow motion í bíómyndunum. Allavega komumst við á stað. Löbbuðum um miðborg Ljubljana sem er full af svona litlum staurum eins og eru á Laugaveginum og á Ráðhústorgi. Labbaði á einn slíkan og næstum því á þrjá til viðbótar. Fórum í túristalest upp að kastalanum sem er í miðborginni sem er frekar flottur fannst mér. Þar datt næstum mannhæðarhátt skilti á mig. Það var bara lagt upp að einhverri girðingu og svo kom vindhviða og ég bara fékk það næstum í hausinn en Egill bjargaði mér. Þar með var skoðunarferðinni lokið og við ákváðum að hafa bara rólegt kvöld heima þar sem við gistum, je right. Kvöldið endaði á ca 50 manna partýi í hjónarúminu hjá Þengli og Krunku. Á föstudeginum var æfing og svo var frjáls dagur. Við fórum í verslunarferð niðrí bæ. Ég reyndar keypti ekki neitt en þetta var nú samt góður dagur. Um kvöldið fundum við bar/skemmtistað sem við kölluðum kjallarann af því hann var í kjallara og við gátum hvort sem er ekkert munað nafnið. Þangað fórum við reyndar næstu tvö kvöld líka. Á laugardeginum voru tónleikar þar sem mættu svona 15 manns en engu að síður voru þetta skemmtilegir og góðir tónleikar. Eftir tónleikana var komin hellirigning og fæst okkar höfðu haft regnhlífar eða regnjakkana okkar með en við komumst nú samt heim. Um kvöldið fór ég ásamt helmingnum af kórnum okkar á tónleika háskólakórs Ljubljana og svo enduðum við á hinum geysivinsæla kjallara. Á sunnudeginum lögðum við af stað um kl. 8 að morgni og byrjuðum á því að skoða stórt vatn sem kemur og fer árlega. Það var frekar merkilegt fannst mér. Þá var komið að hápunkti ferðarinnar að mínu mati sem voru dropasteinshellarnir. Postojna hellirinn er 21 km að lengd og við skoðuðum ca. 3 km af honum og vá hvað hann er flottur. Það má víst ekki taka myndir af honum en það voru nú samt margir sem stálust til þess. Þið getið kannski skoðað þær ásamt öðrum myndum á kórsíðunni. Eftir þetta fórum við og fengum okkur að borða og svo fórum við í einhvern kastala sem var líka safn, þar á meðal blúndusafn. Ekki spyrja. Um kvöldið hittum við hluta af Slóvenska kórnum hvar annars staðar en á kjallaranum. Á mánudagsmorgunin svaf ég nú bara á meðan nokkrir eiturhressir kórfélagar fóru í búðir. Lögðum af stað um 14 til Feneyja og vorum komin þangað um kvöldmatarleytið. Fórum og fengum okkur að borða og fórum svo bara aftur upp á hótel og kjöftuðum og fórum svo bara snemma að sofa. Daginn eftir vöknuðum við snemma og borðuðum morgunmat fyrir 9. Dagurinn var frjáls en flestir fóru á Markúsartorg og skoðuðu sig um þar í kring. Ég, Lára, Svanhvít, Bidda og Shawn skelltum okkur í gondola siglingu og upp í turninn sem stendur við Markúsartorgið. Úr þessum turni er alveg frábært útsýni yfir Feneyjar. Afganginn af deginum röltum við um göturnar, skoðuðum túristabúðirnar sem eru fullar af grímur, kirkju sem ég man ekki hvað heitir og fleira. Ég keypti tvær grímur sem eru geggjað flottar, hver ætlar að bjóða mér í grímupartý fljótlega :) Um kvöldið gerðumst við frekar menningarleg, allavega ég, Lára, Svanhvít, Bidda, Kristín, Gaui, Anna, Fríða og Egill. Skelltum okkur út að borða og fórum svo á tónleika þar sem The four seasons eftir Vivaldi voru spilaðar. Sellóleikarinn fór á kostum og sumar stelpurnar fóru og nældu sér í eiginhandaráritun eftir tónleikana. Í gær var haldið heim og þá var meira að segja enn lengri bið á Stansted. Sumir fóru til London, sumir sváfu á flugvellinum en ég og fleiri fórum til Cambridge. Við fórum á kínverskan veitingarstað þar sem við vorum öll komin með ógeð á pizzu og pasta. Ég fékk mér önd sem var alveg ótrúlega góð. Svo skoðuðum við okkur aðeins um og skruppum rétt aðeins í búðir og þá var kominn tími á að fara til baka og tékka sig inn í flugið og að lokum komumst við heim. The end.
ÆÆÆÆÆÆ, nei annars. Ég get ekki minnst á þessa ferð án þess að minnast á fánann minn. Áður en við fórum keypti ég nefnilega íslenka fánann sem vakti mikla lukku því þegar við vorum að labba einhvers staðar þá gat enginn tínst því það sáu alltaf allir fánann. Samt keypti ég hann eiginlega bara til þess að fíflast og láta eins og við værum algjörir túristar með guide, fána og alles. Það kom bara greinilega í ljós að við VORUM algjörir túristar með fána og alles ;)
Þetta var a.m.k. frábær ferð eins og allar hinar kórferðirnar sem ég hef farið í og nú verð ég að fara að pakka niður öllu dótinu mínu því ég er að fara heim eftir bara nokkra daga. Sjáumst síðar :)

þriðjudagur, maí 18
Lagt af stað til Slóvó eftir tæpa 6 tíma, ætla að reyna að sofa eitthvað. Sjáumst síðar...
mánudagur, maí 17
Aðalfundur kórsins var í gær með tilheyrandi djammi og í dag verður byrjað að taka sig til fyrir Slóveníu. Það er sko allt að gerast þessa dagana :)
föstudagur, maí 14
Hæbbs loxins... Er hjá Láru að djamma og djúsa núna þegar SÍÐASTA prófið í HÍ er búið. Fór í klippingu í dag og hárið bara fauk af í massavís. Mamma er í heimsókn en hún fær nú bara að hafa íbúðina út af fyrir sig því ég ætla að DJAMMA í kvöld. Reyndar er eurovision á morgun, aðalfundur kórsins á sunnudaginn og síðan endalaust djamm frá miðvikudegi til miðvikudags :) Svona á að fagna próflokum :) :) :)
Hey annars, hér er brandarinn "MINN" sem á eftir að vera svona eins og minnkabúið-sem-minnkaði-þangað-til-það-var-búið brandarinn hennar Ilmar:
Vitiði af hverju ljóskur baka aldrei tvöfalda uppskrift?
Ofninn nær ekki upp í 370 gráður...
Bahahahahahahahahahahahahahahahahaha......
Ef ykkur finnst þetta EKKI fyndið þá veit ég ekki hvað ég á að gera við ykkur!!!

sunnudagur, maí 9
Í gær var góður dagur en dagurinn í dag stefnir í að verða enn betri :)
laugardagur, maí 8
Grilla pylsur með bjór í annarri og bókina í hinni er snilld... Ilmur, Katrín og Gummi komu í "pylsupartý" til "okkar" áðan. Er samt bara að drekka bjór núna. Láru tókst að spilla mér. Hún er að reyna að halda því fram að það sko ekki erfitt en ég trúi henni ekki, en þið?
föstudagur, maí 7
Lára er búin í prófunum, til hamingju Lára. Nú hefur hún ekkert að gera næstu daga nema trufla mig við lærdóminn, ef það er eitthvað til þess að trufla. Prófið er eftir viku og þótt ég eigi eftir að læra fullt í þessu námskeiði þá bara nenni ég ekki að byrja að læra strax.
Ég fór á kaffihús með kórnum á miðvikudagskvöldið og svo í kringluna í gær með Láru og Nönnu. Ég keypti mér gulan bol, peysu og rauða skó. Ótrúlega gaman alltaf að kaupa sér ný föt. Svo fórum við í keilu og pool og ég fékk titilinn lúser dagsins því það var sko ekkert að ganga upp hjá mér. Náði fimm umferðum í keilunni án þess að fá neitt stig, toppið það...

miðvikudagur, maí 5
Bara eitt próf eftir... og ég útskrifast nema ég verði alvarlega veik og komist ekki í seinasta prófið því ég NÁÐI FJÁRMÁLASTÆRÐFRÆÐI, húrra... reyndar fékk ég bara 4 en það var sko 4.4 en ekki 3.5 ;) Svo voru prófin sem ég fór í á mánud. og í dag ekkert svo erfið, fæ örugglega 8 og 9 í þeim áföngum. Núna eru 9 dagar í næsta próf og sko ekki séns í helv... að ég nenni að fara að læra strax. Ætla með kórnum á kaffihús í kvöld og gera fullt af gáfulegum hlutum á morgun, bara ekki læra.
Eftir tvær vikur verð ég í Slóveníu, hlakka til. Eftir mánuð verð ég komin norður til að vera þar í a.m.k. ár. Úff...
Í sumar ætla ég að:
- flytja allt draslið mitt heim
- koma öllu draslinu mínu fyrir í bílskúrnum hjá mömmu og pabba
- vinna sem mælingarmaður hjá Akureyrarbæ eins og síðustu 3 sumur
- byrja að skoða það sem ég á að kenna næsta vetur
- kenna menntskælingum aukatíma fyrir upptökupróf
- hlakka til og kvíða fyrir að fara að kenna
- fara eina helgi austur til Katrínar og Gumma eftir að Kitta er komin heim (þá veistu það Kitta mín)
- fara í útilegu með HÍ-kórnum 3ju helgina í júlí
- liggja í sólbaði á nýja pallinum okkar í allri veðurblíðunni fyrir norðan þið vitið ;)
- ná gamla herberginu af systur minni því hún er hvort sem er aldrei heima
- fara kannski á Þjóðhátíð í Eyjum
- útskrifast frá HÍ
- lifa lífinu lifandi...
Næsta vetur ætla ég að:
- kenna í MA
- halda geðheilsunni
- koma suður ca. eina helgi í mánuði
(ath. nr. 2 og 3 tengjast mjög mikið)
gott plan held ég barasta, nema kannski ætti ég að bæta inn einhverju heilsuræktarátaki ;)

mánudagur, maí 3
Bloggið mitt er vikugamalt... til hamingju blogg :)
Prófið gekk bara fínt.
Það eru allir að verða fullorðnir í kringum mig... tjái mig um það seinna.
Læri læri læri læri...
Heyriði ef þið eða einhver sem þið þekkið er að fara norður eftir 15. maí og hefur pláss í bílnum sínum þá má alveg láta mig vita, massa mikið af drasli sem ég þarf að flytja. Hvernig tókst mér að safna svona miklu drasli? Æi nei ekki svara þessu... Ég þarf allavega ekki að flytja þvottavél :)
Svo nenni ég ekki að flytja rúmið mitt og sófann þannig að ykkur er velkomið að eiga rúmið mitt og kaupa sófann ef þið viljið...

sunnudagur, maí 2
Babaraaa... próf á morgun segiði!!! Búin að vera að læra í dag... milli þess að vera í pásu og ná í mat fyrir Láru ;) Fór útí bakarí í morgun og svo náði ég í pizzu fyrir okkur áðan. Fátækir námsmenn segiru... já já en maður má nú ekki svelta svona í miðri próftíð. Ég er samt í alvöru búin að vera rosalega dugleg við að læra í dag, enda er prófið á morgun þannig að það var ekki seinna vænna. Vitiði ég held að þetta verði ekkert svo erfitt... þetta reddast allavega ... babaræææ...
segir Hóa svakaduglegi orkuboltinn (bahahaha). Góð lýsing á mér, eþaggi ;)
segir Hóa svakaduglegi orkuboltinn (bahahaha). Góð lýsing á mér, eþaggi ;)
laugardagur, maí 1
Ótrúlega getur maður verið bilaður!!! Ætlaði í badminton áðan eins og flesta laugardaga en svo var bara allt lok, lok og læs... fattaði að það er auðvitað 1. maí...
Hvítvínsflaskan sem ég keypti fyrir kórárshátíðina og gleymdi svo í fyrirpartýinu (algjör bömmer) er loksins búin. Fékk góða hjálp frá Láru og Sigurrós í gærkvöldi. Lára leiðindapúki kom yfir og spurði fyrst hvort ég ætti hvítvín og þegar ég sagði já þá bauð hún mér í mat, hnuss... Klukkan var samt 9 þannig að ég var löngu búin að borða, en þar sem ég er mjög góð manneskja þá gaf ég þeim samt hvítvín. Þannig að við sátum hjá Láru, þær borðuðu og drukku hvítvín og ég drakk bara hvítvín :) Svo fórum við og tókum DVD, þannig að það var ekkert lært í gærkvöldi, ekki tekið til og heldur ekki heldur farið snemma að sofa... Bara venjuleg próftíð sem sagt, huhummm... Allavega nú er ég að fara að læra, alveg satt. Sjáumst síðar uppfull af fróðleik um ólínulega bestun sem er reyndar nokkuð skemmtilegt fag. Lofa að fara ekkert að útskýra hvað þetta er ógeðsleg sniðugt, þið nennið hvort sem er aldrei að hlusta á mig og segið bara já já. Hnuss... Komin með leið á að vera í fagi sem ég get ekki útskýrt fyrir fólki. Kitta, Lára, allar hjúkkurnar og jafnvel Katrín geta raunveruleikatengt námið sitt og útskýrt geðveikt sniðuga dótið sem þær eru að læra. OK, nú ætla ég að fara að læra... nema ég fari að gera eitthvað annað, nei ok ég er að fara að læra... bæjó