laugardagur, júní 26
Ekkert að frétta. Er í vinnunni á leiðinni heim. Engar áhyggjur, það er ekki séns að ég verði nokkurn tíman vinnualki... Allt að verða vitlaust á EM, bara allar stóru þjóðirnar farnar heim. Spánverjar, Þjóðverjar, Ítalir, Englendingar og loks Frakkar Leikur Portúgala og Englands var hreint út sagt besti og mest spennandi leikur sem ég hef séð held ég barasta. Gat ekki sofnað fyrr en ég veit ekki hvenær, var svo lengi að ná mér eftir þessi ósköp. Aftur á móti var ekki hægt að segja það sama um leikinn í gær, Frakkland og Grikkland voru sko ekki að brillera. Hunsleiðinlegur leikur.
fimmtudagur, júní 24
Úff, ég er komin með B.S. í stærðfræði, til hamingju ég. Nú eru sko engar afsakanir teknar gildar ef maður klikkar á hugarreikningnum, sem ég b.t.w. virðist vera vita vonlaus í þessa dagana. Útskriftin tók LANGAN tíma en kórinn bjargaði mér þó frá seinasta hálftímanum :) Mér tókst að finna útskriftardragt, rauða og alles, á korteri daginn fyrir útskrift. Reyndar fór ég svo og skoðaði fleiri en þessi var sko langbest. Svo tók ca. 4 tíma að finna bol innan undir dragtina. Já ég veit að ég er skrýtin en ég meina ég var að útskrifast úr stærðfræði við hverju býstu eiginlega. Valgerður litla systir var að deyja úr leiðindum að reyna að finna bol því hana langaði sko að fara og kaupa pils og jakka og Diesel-gallabuxur og bol og ..... Við erum ekki beint líkar á þessu sviði við systurnar. Hún snarskánaði nú samt þegar ég var búin að lána henni fyrir pilsi og jakka svo hún gæti nú verið sómasamlega til fara við útskriftina mína, eins og krakkinn eigi ekki nóg af fötum... Jæja en allavega tókst mér að útskrifast og meira að segja með alveg þokkalega einkunn svo ég segi bara ALDREI AFTUR Í HÍ. Nú tekur bara við kennsla í MA. Á að kenna stoðtíma í 1. bekk, 1C, 2T, 2U og lík og töl í 4X, jibbý... Svo erum við 5 sem erum ný að fara að kenna stæ í MA, eitt stykki doktor í stæ og svo fjórir krakkagrislingar. Kemur allt í ljós hvernig þetta verður :)
Jæja, best að fara að drífa sig heim úr vinnunni og fá sér eitthvað að borða :)
P.S. það var mynd af mér í mogganum frá útskriftinni ef þið viljið rifja upp hvernig ég lít út...
Jæja, best að fara að drífa sig heim úr vinnunni og fá sér eitthvað að borða :)
P.S. það var mynd af mér í mogganum frá útskriftinni ef þið viljið rifja upp hvernig ég lít út...
fimmtudagur, júní 17
Gleðilegan 17. júní :) Ég trúi því bara ekki að það séu 3 ár síðan ég útskrifaðist úr MA. Mér finnst svo stutt síðan. Ég er heldur ekkert að fatta að það eru bara 2 dagar þangað til ég útskrifast úr HÍ. Ég ætlaði að kaupa mér útskriftardragt en er ekki enn búin að því, go Hóa. Hef heldur ekki boðið í nein partý því það eru sko um tvö partý um að ræða, kórpartý á Gauknum og stæ-partý í löggusalnum í Brautarholti, og ég barasta veit ekki í hvaða partý ég verð hvenær. Á eftir að ákveða það. Við fjölskyldan erum samt búin að panta borð á Apótekinu um kvöldið svo það er eitthvað sem er ákveðið. Er að fara suður bara núna á eftir. Því miður tók ég sjónvarpið mitt með norður í seinustu ferð, var bara ekki búin að fatta að EM væri þessa helgi. Annars er eiginlega ekkert að frétta, bara búin að vera að vinna, fara í útskriftarpartý til Sigurbjargar og djamma með Láru. Jæja, verð að fara að pakka. Bæjó.
mánudagur, júní 7
Jæja, eins og Ilmur benti á þá er kannski kominn tími til að blogga. Er búin að vera hérna fyrir norðan í viku núna. Byrjuð að vinna sem mælingarmaður og á fimmtudaginn vann ég frá hálf-fjögur til hálf-fimm, ha... nei ekki í einn tíma heldur ÞRETTÁN. Aðeins of mikið svona þriðja daginn í vinnunni. Af hverju byrjuðum við svona snemma!?! (Fæ sko alltaf þessa spurningu.) Sko, við vorum að mæla fyrir eyjunum á Borgarbraut og það er ekki hægt að gera það með fullt af bílum að keyra allt í kring. Það var samt ein kona sem ég hélt að myndi í alvörunni keyra á mig en allavega... Ég er eiginlega bara sumarstarfsmaður en þetta er fjórða sumarið mitt og nýi mælingarmaðurinn er bara búinn að vinna í ca 1 og 1/2 mánuð svo ég kann miklu meira en hann sem er mjög skrýtið. Aukavinnan mín byrjar svo seinna í kvöld. Þið megið geta einu sinni hvað það er ........... búin að giska, jamm og það var rétt, aukatímar í stæ fyrir menntaskólanema, húrra. Fráhvarfseinkennin frá djammi eftir Slóveníu voru horfin svo ég hætti mér á djammið með Láru og Sigrúnu úr HÍ-kórnum á föstudagskvöldið, fórum á Kaffi Ak og skemmtum okkur eins og okkur er einum lagið ;) Sunnudaginn notuðum við systurnar til að breyta herbergjunum okkar að vild. Þ.e.a.s. við gerðum smá í mínu herbergi, heilan helling í hennar herbergi og svo þegar ég ætlaði að fá hana til að hjálpa mér meira þá nennti hún því ekki, alveg týpískt!!! Hún vildi bara bjóða vinum sínum í heimsókn að sjá "nýja" herbergið hennar. Ég vil líka taka það fram að breytingin hjá henni fólst aðallega í því að skipta um skrifborð, úr skrifborðinu sem ég á og notaði meðan ég var í MA í skrifborðið sem ég á og notaði í HÍ. Og hver haldiði að hafi skrúfað allt sundur og saman??? Ekki hún. Pirr. En hún er nú samt ágæt greyið, fæ hana bara til að hjálpa mér seinna. Annars flúði mamma til Prag þrem tímum eftir að ég kom heim og pabbi var í sveitinni eiginlega alla helgina þannig að þetta er búinn að vera ágætur aðlögunartími í því að búa með öðru fólki ;)