þriðjudagur, ágúst 10
Farið nú varlega í umferðinni á Akureyri á næstu dögum og vikum því Valgerður litla systir er komin með bílpróf. Fékk það bara núna rétt áðan. Til hamingju Valgerður.
Ég gleymdi líka alltaf að segja ykkur að það er búið að breyta því hvað ég á að kenna. Þar sem Valgerður er að fara í 2. bekk þá á ég að kenna 3. bekk í staðinn fyrir 2. bekk og svo neitaði Áskell að kenna fjóra mismunandi áfanga svo ég er bara að kenna einum 3. bekk en kenni í staðinn báðum fjórðu bekkjunum. Þ.e.a.s. ég kenni líklega 1C, 3T eða 3U, lík og töl í 4UX og 4T og svo stoðtíma í 1. bekk. Það eru bara tveir fjórðu bekkir af því að þau mega velja hvort þau taka þessa stærðfræði eða ekki. Svo verð ég auðvitað með umsjónarbekk sem verður líklega 1. bekkurinn sem ég kenni. Fæ að fara á Hólavatn og svona ;-) Allavega, ég er búin að fara upp í MA og hitta hina stærðfræðikennarana sem eru eiginlega allir nýir. Stefnir allt í ágætisvetur þó að vinir mínir munu yfirgefa mig nú í lok ágúst, buhuhuhu :(

laugardagur, ágúst 7
Í fréttum er þetta helst:
Hólmfríður Þorsteinsdóttir varð í 7-8 sæti á Ólympíuleikum mælingamanna sem fram fóru þann 23. júlí á Ólympíuleikvanginum við gömlu garðræktina. Hún byrjaði keppnina vel og varð í öðru sæti í fyrstu greininni sem var sleggjukast en vegna drykkju og meiri áhuga á að reikna stig heldur en að keppa þá fór sem fór.
Um verslunarmannahelgina mætti alls konar óþjóðalýður til Akureyrar, höfuðstaðar Norðurlands. Þar á meðal voru þau Sigurður Ágúst, Ilmur Dögg og Haraldur sem tókst með herkjum að draga indæla og rólega akureyrarmær með sér á djammið tvo daga í röð. Þeim tókst ekki að draga hana með sér á Kaffi Ak á föstudagskvöldið því þá var hún neydd til að drekka rauðvín og syngja í grillveislu hjá frænda sínum þar til þessi rólega akureyrarmær var búin að vaka í 23 tíma þá loksins fékk hún að fara heim. Á laugardagskvöldið var farið á Ný Dönsk á Oddvitanum og á sunnudagskvöldið var farið á Papana í Sjallanum. Líðan stúlkunnar er eftir atvikum en talið er að ekki hafi hlotist varanlegur skaði af.
Tæknideild Akureyrarbæjar varð fyrir miklum missi seinnipartinn í gær þegar besti mælingarmaður bæjarins í áratugi ákvað að láta af störfum og fara að undirbúa kennslu. Hans verður sárt saknað en til að lina þjáningar samstarfsfólks hans bakaði hann tvær ótrúlega góðar kökur.
Lýst er eftir ungri stúlku að nafni Lára Kristín Unnarsdóttir. Hún er ljóshærð og ennþá lítil þrátt fyrir að hafa orðið 22 ára í gær. Seinast sást til hennar í miðbæ Akureyrar um fjögurleytið í nótt með hamborgara í annarri og kók í hinni.
Hrikaleg hálsbólga gengur um Síðuhverfi á Akureyri og er fólki ráðlagt að halda sig frá.
Ekki er fleira í fréttum í kvöld, veriði sæl.