föstudagur, október 29
Er uppí skóla að gera absolútlý ekki neitt. Valgerður þarf að mæta kl 8:15 á föstudögum svo jafnvel þó ég byrji ekki að kenna fyrr en 9 þá þarf ég samt að vakna snemma. Sé fram á álíka skemmtilega helgi og seinustu helgi en það er allt í lagi því eftir viku þá verð ég í Rvík :-) :-) :-)
mánudagur, október 25
Ég veit að stundum er ömurlega leiðinlegt að gera heimadæmi en maður lærir þó alltaf eitthvað á því. Þess vegna er ég komin á þá skoðun að það sé enn leiðinlegra að fara yfir heimadæmi en að gera þau. Maður er alltaf að skoða sömu dæmin aftur og aftur, reyna að finna villurnar, reyna að skilja hvernig sumum getur tekist að flækja þetta svona gífurlega og svo lærir maður ekkert á þessu sjálfur...
P.S. er að verða búin að fara yfir þessi 55 próf og 27 heimadæmi en svo tók 3T aukapróf í morgun svo ég hef það líka ef mér fer að leiðast eitthvað.
P.P.S. sé ekki fram á að komast suður næstu helgi, mikið að gera og svo var ég búin að gleyma að pabbi á afmæli á mánud. svo við ætlum að gera eitthvað skemmtilegt á sunnud.
P.S. er að verða búin að fara yfir þessi 55 próf og 27 heimadæmi en svo tók 3T aukapróf í morgun svo ég hef það líka ef mér fer að leiðast eitthvað.
P.P.S. sé ekki fram á að komast suður næstu helgi, mikið að gera og svo var ég búin að gleyma að pabbi á afmæli á mánud. svo við ætlum að gera eitthvað skemmtilegt á sunnud.
föstudagur, október 22
Góð helgi framundan, hef um 55 könnunarpróf og 27 heimadæmi til að fara yfir auk undirbúnings og að semja fleiri heimadæmi og próf (og hef heldur ekkert betra að gera) :/ Er komin með leið á að hanga alltaf hér fyrir norðan og er farin að spá í næstu ferð í borgina. Kem allavega 5-8 nóv. því þá er löng helgi hér í MA, þ.e. það er frí föstudag og mánudag. Það er samt svo langt þangað til þannig að ég var að spá í að koma kannski bara næstu helgi líka. Veit samt ekki alveg hvort ég hef tíma til þess.
Þá er komið að smáauglýsingunum:
Góður vinur/vinkona óskast. Þarf að búa á Stór-Reykjavíkursvæðinu og vera tilbúin til að leyfa mér að gista a.m.k. eina nótt næstu helgi/helgar. Leyfi til að koma seint heim föstudags. og laugardagskv. er æskilegt. Svar óskast í síma.
Þá er komið að smáauglýsingunum:
Góður vinur/vinkona óskast. Þarf að búa á Stór-Reykjavíkursvæðinu og vera tilbúin til að leyfa mér að gista a.m.k. eina nótt næstu helgi/helgar. Leyfi til að koma seint heim föstudags. og laugardagskv. er æskilegt. Svar óskast í síma.
miðvikudagur, október 20
Nú er tími félagsfræðikannanna. Þ.e.a.s. fjórði bekkur á félagsfræðibraut er að leggja kannanir fyrir skólafélaga sína. Það er í sjálfu sér ekkert merkilegt en hins vegar kom fyrir svolítið skondið/vandræðanlegt/óþægilegt augnablik þegar könnun var lögð fyrir 4T (sem eins og þið munið er hreinn strákabekkur) í tíma sem ég var að kenna. Þeir nefnilega byrja að taka könnunina og svo heyrist í einum þeirra "Hvað meiniði eiginlega, gæti ég hugsað mér að eiga í ástarsambandi við kennara?". Önnur unga stúlkan sem var að leggja könnunina og b.t.w. var í busaárgangnum mínum svaraði "Ég meina það eru nú kennarar í þessum skóla sem eru ekki nema þrem til fjórum árum eldri en þú..." og leit svo á mig. OH MY GOD. Auðvitað um leið og þær voru farnar fékk ég spurninguna "Gætir þú hugsað þér að eiga í ástarsambandi við nemanda?" Ég horfði yfir bekkinn, sagði "NEI" og hélt svo áfram að kenna en þeir voru hins vegar vissir um að þetta væri eitthvað persónulegt...
þriðjudagur, október 19
Snjór, snjór, snjór og meiri snjór...
laugardagur, október 16
"Já lömbin mín góð, það er ekkert grín að vera svín" sagði beljan og reykti pípu.
þriðjudagur, október 12
Drasl... Pirr... Urrr... AAArrrg... Draaaasl... Jæja, þá er það búið. Stóð sjálfa mig að því í dag að vera að tala um að plehhh-ið þarna væri þá bara jafnt og f(t). Sagði líka snilldarsetninguna "þá kemjum við bara t-ið milli u og v". Snilldin var að þetta var sagt inn í 3.T. Þau voru ekkert sérstaklega ánægð og vildu frekar að ég kremdi u-ið. Fékk þau allavega til að hlusta sem er plús. Ég var samt í skálaferð í gær og nótt svo þau fyrirgáfu mér allar biluðu setningarnar í dag. Gaman á Hólavatni. Það voru steiktir 50 hamborgarar. Minnir það einhvern á eitthvað? Svaka stuð. Hannes kom í heimsókn upp í skóla í hádeginu í gær og þakkaði mér sérstaklega fyrir glósurnar í raunfó. Alltaf gaman að sjá kallinn. Svaka stuð. Stærðfræðikeppnin framhaldsskólanna sem mér tókst að pína litlu systur í var í morgun. Svaka stuð. Haustþing kennara er víst á föstudaginn. Svaka stuð. Þegar maður var nemandi þá þýddu svoleiðis hlutir bara frí. Núna þýðir þetta að maður þarf að fara og hlusta á eitthvað bla bla í HEILAN DAG. Frá morgni til kvölds. Of rúðustrikuð fyrir svona bla bla. Ætla að fara að gera eitthvað. Drasl...
föstudagur, október 8
Er uppí skóla. Kenni bara tvo tíma í dag. Það datt einn tími niður af því það var salur um brjóstakrabbamein, mjög athyglisvert, og svo er 1. bekkur í skálaferð. Það er svolítið langt síðan ég bloggaði seinast og þið verðið bara að afsaka það. Þegar maður fer svona suður tvær helgar í röð þá verður maður bara að gera ansi mikið á virkum dögum og hefur bara hvorki orku né innblástur í það að blogga. Ekki það að ég sé að kvarta neitt, þessar helgar voru sko alveg þess virði. Sumarbústaður með stúdentagarðagenginu með góðum mat, góðum drykkjarveigum, góðu afslappelsi og góðum skammti af dissi og svo smá skrepp suður til þess eins að fara í Smáralind að versla og MA-partý. Fór í bekkjarfyrirpartý heima hjá Ilmi með gommu af pizzu og fyndnum myndum sem Ilmur snillingur tók meðan við vorum í MA. Jesús minn hvað við erum öll krakkaleg eitthvað á þessum myndum. Svo fórum við niður á Gauk í "rosa MA-partý". Gamlir MA-ingar stóðu ekki alveg undir væntingum því það var eitthvað slöpp mæting. Svo hef ég bara verið á fullu að fara yfir og búa til dæmi og próf, ásamt því að gera lausnir við öllu dótinu. Svaka stuð alveg hreint. Ég er að fara í skálaferð á mánudaginn með bekk sem ég þekki ekkert, er ekki einu sinni að kenna honum. Það var bara svolítið erfitt að finna einhvern til að fara með þeim svo ég var bara "pínd" til þess. Fer sem sagt kl. 16 á mánudag og Ragnheiður tekur við af mér kl 8 næsta morgun, ég bruna til Akureyrar og kenni allan þriðjudaginn. Verð örugglega súper hress eftir þann dag. Um að gera að hvíla sig bara vel þessa helgi. Annars er bara frekar gaman að kenna þessum grislingum, sérstaklega þegar maður spyr "fattiði?" og fær svar eftir smá stund sem hljómar svona "Hvað er það sem við eigum að fatta? Ég fatta ekki hvað það er sem við eigum að fatta!!!" ;-)
Við komumst að því í gær að stærðfræðikennarastofan hjá M5 er kölluð "Barnaheimilið" eða "Keli og krakkarnir". Hver haldiði að hafi fundið upp á þessum nöfnum? Svar óskast í comments.
Við komumst að því í gær að stærðfræðikennarastofan hjá M5 er kölluð "Barnaheimilið" eða "Keli og krakkarnir". Hver haldiði að hafi fundið upp á þessum nöfnum? Svar óskast í comments.