<$BlogRSDURL$>

fimmtudagur, janúar 27

Jæja litlu Reykjavíkurræflar, passið ykkur bara því bráðum kemur stóra ljóta bjórskrímslið að norðan, múhahahahahahahahaaaa...

mánudagur, janúar 24

Var að panta mér flug með vildarpunktunum mínum. Snilld ;-) Á pantað flug 18:10 á fimmtudaginn og tilbaka 11:00 á sunnudaginn. Steinunn er að fara norður svo ég fæ rúmið hennar lánað og gisti sem sagt á mínu gamla heimili í Miðleitinu :-) Ásrún ætlar nú samt að henda mér út á Guð og gaddinn á laugardagskvöld því hún ætlar að halda partý. Mig vantar semsé samastað þá því annars neyðist ég til að drepa tímann á bar niðrí bæ...

sunnudagur, janúar 23

Jæja, nú fer að líða að næstu ferð minni suður. Kem líklega seinnipartinn á fimmtudaginn og fer um hádegi á sunnudaginn. Ef einhver hefur áhuga á því að hitta mig á þessum tíma fyrir sunnan er fólki bent á farsímann minn...

miðvikudagur, janúar 19

Hverjum hefði dottið þetta í hug?

Sloth
You are Sloth!Lazy huh ?? You're a bit slow in getting going -
and tend not to do anything unless it is
absolutely necessary. You'd rather sit around,
watch TV/Sleep then go out and about with
friends, or take part in a sporting event. On
the positive side, you tend to be quite smart,
as you spend a lot of time watching the News
(!!) or on the computer, Also by conserving
your energy, it's right there waiting for you
when it's vitally important to get going.Consider possibly moving out of the room once in a
while - and perhaps once a week trade watching
TV for half an hour with a walk - and you'll be
back on track.However, Congratulations on being the most
intelligent of the 7 deadly sins...

?? Which Of The Seven Deadly Sins Are You ??
brought to you by


þriðjudagur, janúar 18

Plehhh...

sunnudagur, janúar 16

Skrýtna líf... Hálftíma eftir síðustu bloggfærslu hringdi Hannes og spurði hvort ég nennti ekki á djammið. Stærðfræði- og eðlisfræðinemar voru nefnilega hér fyrir norðan í skíðaferð og voru á leiðinni í vínsyndaferð í Vífilfell ;-) Þannig að ég skellti mér bara á Kaffi Ak með þeim seinna um kvöldið. Ótrúlega þekkti maður lítið af þessum stæ-nemum. Aðallega þá sem byrjuðu um leið og ég en höfðu tekið sér ársfrí og þá sem eru á seinasta ári núna, þeir voru ekki margir.
Annars er bara allt ágætt að frétta. Var að vinna í gær, reiknaði sýniprófið fyrir þriðja bekk og hélt áfram að fara yfir próf. Ætla að taka mér frí í dag en ég hef ekki hugmynd um hvað ég á af mér að gera. Ótrúlegt hvað það munar um hvort vinir manns eru nálægt manni eða ekki. Mér leiðist miklu meir af því ég veit að það er engin vinkona mín sem ég get hringt í og beðið að koma að gera eitthvað en samt ef það væri einhver hér þá er ég samt ekkert viss um að ég myndi hringja. Ætli ég hendi mér bara ekki upp í sófa með góða bók eða þá að ég taki mér símtól í hönd og athuga hvað er að frétta sunnan heiða því bloggfærslum sumra vinkvenna minna hefur fækkað grunsamlega mikið...

föstudagur, janúar 14

Líf mitt síðustu daga:
Semja próf reikna próf yfirfara próf sitja yfir prófum fara yfir próf borða pizzu fara yfir fleiri próf fara yfir enn fleiri próf sitja yfir fleiri prófum semja fleiri próf reikna sýnipróf próf próf próf...

sunnudagur, janúar 9

Gleðilegt nýtt ár elskurnar. Ég nennti bara ekki að blogga um jólin, ég var nefnilega svo upptekin við að gera ekki neitt. Það sem ég gerði milli jóla og nýárs annað en að liggja í leta var að fara í Sjallann annan í jólum og bjóða nokkrum vinkonum mínum í mat 29. des.
Það var gaman að kíkja í Sjallann eftir langt hlé. Fór með Kittu og Magnúsi og svo rákumst við á Láru, Nönnu og fleiri í góðum gír. Rakst líka á nokkra nemendur ;-)
Kvöldverðarboðið heppnaðist líka vel. Ég fór gjörsamlega á kostum í eldhúsinu. Að sjálfsögðu var þríréttað, snittur í forrétt, léttreykt svínakjöt í aðalrétt og heimatilbúinn ís í eftirrétt og auk þess voru drykkirnir ekki af verri endanum. Eftir matinn spiluðum við svo pictionary sem ég fékk í jólagjöf frá þessum elskum. Það er miklu erfiðara en gamla spilið því stundum þarf maður að teikna með lokuð augun eða með vinstri eða bara með einu pennastriki ;-) En þetta hafðist allt að lokum. Snilldarmatarboð þó ég segi sjálf frá.
Prófin byrja svo á morgun og ég er orðin stressuð. Veit ekki alveg af hverju, en samt...
Það verður örugglega nóg að gera næstu vikurnar, púff...

This page is powered by Blogger. Isn't yours?