<$BlogRSDURL$>

mánudagur, febrúar 28

AAAAAAAAAAAAAAAATSJÚÚÚÚÚ...

fimmtudagur, febrúar 24

Lífið er yndislegt. 4X er á leið í vikuferð til London og 1 bekkur fær frí frá prófum og heimadæmum í næstu viku svo sú vika verður bara nokkuð ljúf. Ætla að reyna að gera ýmislegt sem ég hef ekki komist í hingað til.

Hannes kom um seinustu helgi norður og þar sem kallinn átti afmæli á laugardaginn dreif ég mig í Sjallann með honum. Þar var gaman að vanda. Nokkrir nemendur MA sprungu úr hlátri þegar þeir sáu okkur saman í Sjallanum en ég hef ekki hugmynd um hvað í ósköpunum var svona fyndið við það.
Lára kom líka síðustu helgi og var fram á mánudag. Það var svo geggjað gott veður á mánudaginn að við skruppum í labbitúr í Kjarnaskógi þegar ég var búin að kenna.
Siggi rétt skrapp norður í gær til að kynna verkfræðina fyrir fjórðubekkingum MA og VMA og kíkti við á kennarastofunni.
Á morgun kemur Ilmur norður og ætlar að borða með mér Greifapizzu (bestu pizzur í heimi) og Brynjuís um helgina. Það verður gaman að sjá kellu.

Stóra spurningin er "hver kemur næst?"

föstudagur, febrúar 18

Vil bara benda ykkur á það að það er komin helgi ;-)

Cocktail
Cocktail


?? Which Alcoholic Drink Are You ??
brought to you by Quizilla

Aphrodite
Aphrodite/Eros


?? Which Of The Greek Gods Are You ??
brought to you by Quizilla


you are lightcyan
#E0FFFF

Your dominant hues are green and blue. You're smart and you know it, and want to use your power to help people and relate to others. Even though you tend to battle with yourself, you solve other people's conflicts well.

Your saturation level is very low - you have better things to do than jump headfirst into every little project. You make sure your actions are going to really accomplish something before you start because you hate wasting energy making everyone else think you're working.

Your outlook on life is very bright. You are sunny and optimistic about life and others find it very encouraging, but remember to tone it down if you sense irritation.
the spacefem.com html color quiz

miðvikudagur, febrúar 9

Sko ég er ekkert svo mikið nörd, hummm...


I am nerdier than 40% of all people. Are you nerdier? Click here to find out!



Djö... er ég latur bloggari þessa dagana. En svona er þetta þegar maður fer suður aðra hvora helgi og þarf þess vegna að vinna eins og brjálaður maður þess á milli. Jamm þið lásuð rétt, suður aðra hvora helgi og nú er sem sagt komið að næstu suðurferð. Flug á föstud. kl 18 og heim sunnud. kl. 11. Trúiði því að það var ekkert sæti laust seinna en 11 á sunnudaginn! Ekki einu sinni fyrir 10.000 kr svo allar vélar hljóta bara að vera fullar. Hvað er eiginlega að gerast fyrir sunnan þessa helgi? Hey nú veit ég, tónleikar Háskólakórsins hljóta að hafa svona mikið aðdráttarafl ;-)

föstudagur, febrúar 4

Jæja elskurnar mínar, bara enn einu sinni kominn flöskudagur... Seinasta helgi var tær snilld. Ásrún náði í mig á flugvöllinn á og við höfðum það afar kósí á mínu gamla heimili. Á föstudaginn hékk ég í Kringlunni meiripartinn af deginum en náði nú ekki að kaupa nema einar buxur og tvenna boli því það voru útsölulok og erfitt að finna flott föt sem voru til í réttu númeri. Hvað er málið með þessar útsölur, byrja milli jóla og nýárs og endast allan janúar. Skaust rétt í Kringluna á laugardaginn og þá var komin ný sending af fötum í nokkrar búðir, týpískt. Verð þá bara að fara aftur suður bráðum til að kaupa meiri föt;-)
Á föstudagskvöldið pantaði ég pizzu með stúdentagarðagenginu og co. og svo var farið á Gaukinn í 100 ára afmæli, þ.e. 4*25 ára afmæli Balla, Halla og fleiri. Frábærlega skemmtilegt partý, svo gaman að hitta alla aftur :-)
Laugardagurinn var dagur hollustu og óhollustu. Ilmur kom í kaffi til mín og Ásrúnar og við fórum og keyptum okkur súkkulaði-súkkulaðiköku og rjóma, ummmm. Eftir það fékk ég að fara með Ásrúnu, Elvu og Sigurbjörgu í badminton til að brenna þessum kaloríum. Veit ekki hvort ég fæ að fara aftur því við spiluðum þrjá tvíliðaleiki og ég vann alltaf, því eins og ég hef margoft sagt þá er ég snillingur. (Nanna, takk fyrir badmintonþjálfunina seinasta vetur) .
Laugardagskvöldið var haldið þorrablót hjá Katrínu. Alvöru þorramatur, hákarl og brennivín. Það var ansi skemmtilegt, sérstaklega svipurinn á sumum þegar þeir smökkuðu sumt ;-) Svo var haldið 24 maraþon hjá Ilmi og Halla sem alveg merkilega margir tóku þátt í.

Nú er maður sem sagt komin norður aftur, ný önn byrjuð og alveg nóg að gera. Nýja önnin hefur samt farið ansi rólega á stað sem er bara gott mál. Fínir bekkir þó að 28 manns í fyrsta bekk sé svona alveg í það mesta og ótrúlega gaman að fá að kenna 4X svo maður verði ekki alveg steiktur af fyrsta bekkjar stæ ;-)

This page is powered by Blogger. Isn't yours?