fimmtudagur, mars 31
Í gær fór ég í mat kl 12:30 [leiðrétting frá stæ-kennara sem kann ekki á klukku: 11:30] eins og venjulega á mánudögum. Þegar ég var búin að fá mér súpu og byrjuð að borða áttaði ég mig á því að það væri bara alls ekkert mánudagur heldur miðvikudagur og að það væru 10 mín liðnar af tíma sem ég átti að vera að kenna. Ég stökk frá borðinu og hljóp upp á Möðruvelli. Bekkurinn var ekki farinn svo ég kenndi og fór svo aftur í mat 12:10. Ég meina maður getur nú ruglast, sérstaklega því ég kenni sömu bekkjum á mánudags- og miðvikudagsmorgnum.
mánudagur, mars 28
Það er svo mikið vor úti að það er eiginlega ótrúlegt að það sé bara mars ennþá. Í gamla daga var nú alltaf snjór um páskana en ég kvarta nú samt ekkert. Ótrúlega gott að fá svona smá frí. Ilmur flaug eiginlega bara norður til að fara á Sálina í Sjallanum svo að sjálfsögðu fór ég líka. Við náðum líka að draga Hannes, Ásrúnu, Láru og næstum því Nönnu með en einhverra hluta vegna voru þau stödd norðan heiða. Furðulegt! Úrslitaþátturinn í Gettur betur var líka sama kvöld. Við pöntuðum pizzu, afsakið GREIFApizzu því annað var ekki tekið til greina og horfðum á MA tapa naumlega fyrir Borgó sem áttu í raun skilið að vinna. Því næst byrjaði DJ Ilmur að grafa upp gamla og góða tónlist fyrir okkur hin, t.d. Reif í skeggið og að sjálfsögðu diska með Sálinni. Næstu tveir dagar fóru í það að liggja í leti, rúnta og kjafta við Ilmi og fleiri. Kitta kom ekki fyrr en á fimmtudeginum og þar sem hún missti af fyrri Sjallaferðinni þá bara uðrum við að bæta henni það með því að fara aftur í Sjallann. Það var sko ekki verri hljómsveit í það skiptið því Paparnir voru mættir á svæðið og var dansað og hoppað og sungið (lesist: öskrað) svo mikið að raddböndin hefðu ekki verið hæf til kennslu næsta dag. Enda fór sá dagur í páskaeggjaát ásamt sveitaferð til að skoða gimbrar og þá meina ég skoða!!! (útskýring: öll barnabörn móðurforeldra minna fengu eina kind í skírnargjöf og hafa öll átt eina kind síðan þó við séum flest orðin nokkuð fullorðin og nú þurfti ég sem sagt að fara og velja mér gimbur sem verður sem sagt kindin mín næstu ár, skrýtin fjölskylda ég veit "andvarp")
Dagurinn í dag hefur verið svona ekta vordagur með brynjuís og skokki í Kjarnaskógi og svo á morgun tekur alvaran við á nýjan leik með undirbúningi fyrir kennslu og öðrum skemmtilegheitum ;-)

fimmtudagur, mars 17
Ég á ammælí dag, ég á ammælí dag, ég á afmæli sjálf, ég á ammælí dag...
Til hamingju ég og til hamingju MA með að vera komið í úrslit í Gettu betur :-)

miðvikudagur, mars 16
Vil minna ykkur á Gettu betur í kvöld, MA vs. Versló :-)
P.S. 2 dagar í páskafrí
P.S. 2 dagar í páskafrí
mánudagur, mars 14
hef ekki tíma til að blogga, hef alltof mikið að gera og alltof lítið að segja...
mánudagur, mars 7
Enn ein snilldarhelgin fyrir sunnan er liðin.
Föstudagskvöldið fór í kjúklingaát a la stúdentagarðar og bíóferð.
Árshátíð háskólakórsins var fjörug og skemmtileg að vanda og stóð svona u.þ.b. frá kl 4 til kl 5 á laugardagskvöldi. Það sem stóð uppúr var góður matur, enn betri skemmtiatriði og frábær félagsskapur. Einnig stóð hljómsveit kvöldsins sig frábærlega, takk fyrir góða skemmtun.
Sunnudagurinn var líka óvenju skemmtilegur, en við hverju býst maður þegar Ilmur, Halli og Hannes eru annars vegar.
Ég er sem sagt komin heim aftur og líður mjög vel fyrir utan risa marblett á ristinni eftir dansinn ;-)

fimmtudagur, mars 3
Reykjavíkurflugvöllur
Nú eru margir að tala og skrifa um að það væri nú örugglega best að færa flugvöllinn úr Vatnsmýrinni því það er svo hentugt svæði fyrir íbúabyggð. Mér finnst að mörgu leiti fínt að hafa hann þar sem hann er, stutt frá Háskóla Íslands og stúdentagörðunum. Háskóli Íslands er nefnilega fyrir alla Íslendinga og það munar um að hafa flugvöllinn nálægan þegar námsmenn vilja skreppa heim eða þegar fólk utan af landi vill komast á endurmenntunarnámskeið hjá HÍ.
Segjum sem svo að Jón sem er skjalavörður á Akureyri vilji fara á þetta námskeið sem stendur frá 8:30-16:00 á föstudegi.
Eins og allt er núna þá væri fyrsta flug frá Akureyri 7:30 svo lending í Reykjavík væri 8:15 svo að hann hefði korter til að labba upp í Háskóla. Heimleiðin væri lítið mál því hann getur valið um flug kl. 17:00, 17:15, 19:15 og 19:40. Flugið kostar í minnsta lagi 12þús og enginn aukakostnaður er af því að komast í HÍ.
Gerum nú ráð fyrir að flugvöllurinn yrði færður í eitthvert úthverfi Reykjavíkur. Annaðhvort væri flogið um a.m.k. klukkutíma fyrr svo Jón þyrfti að vakna fyrr eða þá að Jón yrði mjög seinn. Sjáið þið fyrir ykkur að flugvélin hans Jóns lendi í Grafarvogi um 8:15 á föstudagsmorgni og að hann verði kominn korteri seinna upp í Háskóla? Auk þess finnst mér alveg nóg að borga 12-17 þús fyrir flug og þarf ekkert á því að halda að borga 2-3 þús í leigubíl á hvorri leið.
Ef Jón byggi á Ísafirði þá þyrfti hann að fljúga til Reykjavíkur degi fyrr en gæti náð flugi heim 16:30 (mæting 16:00) ef flugvöllurinn væri nálægt HÍ. Annars þyrfti hann að gista í tvær nætur til þess að vera á tæplega 8 klst. námskeiði.
Eins með Jón sem býr í Vestmannaeyjum. Þaðan er flogið 8:15 um morguninn svo hann yrði bara örlítið seinn og seinasta flug til baka er kl 16:45 svo hann rétt næði því ef hann er nálægt flugvellinum. Annars þyrfti hann eins og Ísfirðingurinn að gista tvær nætur.
Nú er ég enginn hálfviti og veit vel að það eru ekkert allir sem fljúga til Reykjavíkur á leið í Háskólann. Hins vegar er alveg jafn vitlaust að segja að flestir séu hvort sem er á leið til útlanda svo það sé miklu betra að fljúga til Keflavíkur.
Ég er til dæmis á leið í Reykjavíkurferð nr. 3 á þessu ári og hef alltaf flogið því það sparar um 3 tíma hvora leið og það er hvort eð er ekkert mikið ódýrara að keyra. Þar sem ég er líka langoftast á leiðinni á stúdentagarðana skiptir miklu máli fyrir mig að hafa völlinn þar sem hann er. Hins vegar þegar ég fer til útlanda í meira nám þá væri mjög gott að komast næstum beint af alþjóðaflugvelli Íslendinga og heim til Akureyrar. Þess vegna er mín tillaga sú að færa Keflavíkurflugvöll nær Reykjavík, hann mætti vera í einhverju úthverfinu. Nú ef það gengur ekki þá myndi ég vilja að sjá marktæka könnun á því hvert leið fólks liggur til og frá Reykjavíkurflugvelli og að staðsetning hans yrði ákvörðuð út frá því.
Hvað segið þið. Á flugvöllurinn að fara eða vera?

miðvikudagur, mars 2
Búin að prenta út umsókn um skrásetningu í kennslufræði til kennsluréttinda við HA. Nú er bara spurning hvort maður fylli þetta út...