<$BlogRSDURL$>

laugardagur, maí 28

Jæja, ætli það sé ekki best að blogga smá áður en próftíðin hjá mér hefst af alvöru. Margir vinir mínir eru staddir í útlöndum og eru að lepja sólina og örugglega eitthvað aðeins sterkara á meðan maður er hér á skerinu og semur próf ;-)
Það er búið að vera brjálað að gera frá því ég bloggaði síðast. Eurovision stóð eins og alltaf fyrir sínu og að venju voru Íslendingar hundsvekktir yfir stigagjöfinni og bjuggu til ýmsar samsæriskenningar. Fylgdist með seinasta sprettinum í KA heimilinu með Háskólakórnum sem hélt nokkurn vegin eins og hann lagði sig með norska laginu fyrst það íslenska var dottið út. Svo erum við að furða okkur á því að engar austurevrópuþjóðir gefi Íslendingum stig.
Jæja, hvað fleira hefur gerst. Dimissio:) Þrír traktorar með vögnum fullum af fjórðubekkingum mættu í Stapasíðuna. Svertingjar úr gettóinu, vatnsdropar og bónuspokar. Krökkunum í hverfinu fannst ekki leiðinlegt að sjá þetta og stríddu svertingjunum eins mikið og þau gátu þangað til þeir sprautuðu á þau úr vatnsbyssunum. Þá hlupu þau æpandi og öskrandi í burtu og komu svo aftur eftir nokkrar sekúndur til að espa þá meira upp og reyna að fá þá til að bleyta þau meira. Ohhh, krakkar. Hey, man einhver eftir því í fjórða bekk þegar Þorsteini vantaði dekk til að sýna okkur eitthvað og ég kom með dekkið af gamla hjólinu mínu sem var verið að fara að henda. Það er enn til upp í skóla og núverandi 4x er oft eitthvað að leika sér með það svo ég fékk mynd frá þeim með dekkinu. Svona er heimurinn skrýtinn. Svo fékk ég gullnu reiknivélina og vatnsflösku með ótrúlega flottum miða á. Ég mætti svo að sjálfsögðu á Dimissio um kvöldið og það var ótrúlega skemmtilegt. Frábærar ræður og flottar myndir. Í fallistaræðunni var m.a. talað um að margir gáfaðir menn hefðu fallið um bekk og svo voru tekin nokkur dæmi og það fyrsta var...... Bobbý ljósameistari. Mér fannst einhvern vegin ótrúlega fyndið að þau myndu eftir Bobbý. Snilld. Man ekki eftir neinu fleiru sem þið hafið einhvern minnsta áhuga á að vita svo við heyrumst bara síðar.

laugardagur, maí 14

Litlu ólympíuleikarnir fóru fram i gær. Kennarar gegn 4 bekk U. Hörkufjör, glens og gaman og að sjálfsögðu gerði maður sig að fífli enda er dagurinn ætlaður til þess. Þrautabrautin var fyrst, svo komu hinar ýmsu keppnisgreinar. Unnar Þór tefldi, Jóhann og Grétar húlluðu, Einar borðaði skyr og ég keppti í liðleikakeppni þar sem Siggi Bjarklind lét ekki sjá sig. Hef alveg sætt mig við það að fólk hefur mismunandi hæfileika og mínir liggja bara ekki á íþróttasviðinu yfirhöfuð, hvað þá í því að fara í splitt og brú ;-) Enda fékk ég einn frá dómurunum. Mér til bóta má þó segja að dómaranir voru ansi hliðhollir hinu liðinu. Svo var skorað á Jón í dansi og ætluðu þau að fá Jón Má til að dansa ballett. Reyndar gleymdu þau að taka fram hvaða Jón svo Jón húsvörður keppti í dansi í glæsilegum kjól, með hárkollu og í gúmmístígvélum, sú sjón mun ekki gleymast í bráð. Að lokum var farið í fótbolta og reipitog. Fótboltinn var ansi skemmtilegur. Ímyndið ykkur að hægri fóturinn á ykkur sé teipaður við vinstri fótinn á Þorláki félagsfræðikennara og að þið séuð að elta risastóran grænan bolta og reyna að koma honum inn í mark sem er svo lítið að þessar tvær manneskjur sem eru í marki fyrir hitt liðið fylla upp í það. Í reipitoginu var lítil buslusundlaug í miðjunni svo þegar 4U sem greinilega svindlaði eitthvað var búinn að draga okkur alveg að henni datt ég næstum út í en mér tókst á snilldarlegan hátt að bjarga mér. Það stóð nú ekki lengi því nokkrum mínútum síðar þegar búið var að dæma 4U sigurvegara leikana þá voru nokkrir nemendur sem tóku sig til og héldu á mér að lauginni og hentu mér út í. Hef litlu systur sterklega grunaða um að hafa komið eitthvað nálægt þessu því hún stóð skammt frá með skítaglottið alveg út að eyrum. Að lokum fóru nýja og gamla stjórnin í handbolta með "bundið fyrir hendur" og markverðirnir voru með vatnsblöðrur sem voru óspart notaðar gegn andstæðingunum. Svo voru borðaðar pylsur með upsiloni, drukkið pepsi í bauk og farið heim í þurr föt.
Flaug suður eftir hádegið og fór í mat á mitt gamla heimili í Miðleitinu. Þar sem Ásrún var svo að fara í flug eldsnemma í morgun og Ilmur (sem ég gisti hjá) var ennþá að gera lokaverkefni í hjúkrun uppí Grafarvogi þá fékk ég náðarsamlegast að kíkja til Hannesar í heimsókn. Þar voru strákarnir að fagna próflokum, gleðin smitaðist eitthvað því ég endaði á að fara niður í bæ með þeim. Nú sit ég hér heima hjá Ilmi í náttfötunum og með úfið hár og bíð eftir að stelpurnar verði búnar í prófum svo við getum farið í Kringluna að versla eða gert eitthvað annað skemmtilegt.

þriðjudagur, maí 10

Það er komið vor, sólin er farin að skína og þriggja daga helgi er skammt undan. Um að gera að koma sér um helgina til kaldari og blautari staða, t.d. Reykjavík.

miðvikudagur, maí 4

Skuggalegt hvað mikið af þessu er satt...







Your Birthdate: March 17

Your birth on the 17th day of the month suggests that you are very lucky financially, because this date indicates a solid business sense.

Although you are probably very honest and ethical, this birthday enables you to be shrewd and successful in the world of business and commercial enterprise.

You have excellent organizational, managerial, and administrative capabilities enabling you to handle large projects and significant amounts of money with relative ease.



You are ambitious and highly goal-oriented, although you may be better at starting projects than you are at finishing them.

A sensitivity in your nature, often repressed below the surface of awareness, makes it hard to give or receive affection.



What Does Your Birth Date Mean?

This page is powered by Blogger. Isn't yours?