mánudagur, júní 20
Prófin búin, búin að taka til á skrifborðinu, útskriftin búin og seinasti kennarafundur þessa vetrar búinn. Ég held að ég sé bara alveg að komast í sumarfrí... Það voru nokkrir sem komu norður um helgina og það var ótrúlega gaman að hitta þá sem maður fékk að sjá aðeins :)
Fer til Slóveníu á fimmtudagsmorgun og kem til baka 7. júlí og stoppa þá kannski nokkra daga í Rvík ef það verður gott veður þar ;)
Fer til Slóveníu á fimmtudagsmorgun og kem til baka 7. júlí og stoppa þá kannski nokkra daga í Rvík ef það verður gott veður þar ;)
föstudagur, júní 10
Hvað er málið! Sumir vinir mínir eru búnir í skólanum, farnir til útlanda, búnir að vera þar í þrjár vikur og eru að koma heim aftur. Á meðan er ég búin að sitja hér sveitt við að semja og fara yfir próf og er ekki nærri því búin. Sól og gott veður úti en ég læt eins og ég sjái það ekki. Ég ætti samt ekkert að vera að kvarta því þegar þeir sem fara í skóla í haust byrja þá verð ég á leiðinni til Tyrklands, múhahahaa...
miðvikudagur, júní 8
Úff.. þá eru venjulegri próftíð lokið en heill hellingur af sjúkra- og endurtökuprófum eftir... Kvíði fyrir því þegar þau eru búin líka því þá þarf ég að fara að taka til í blaðahaugunum sem liggja á skrifborðinu mínu, oj bara...