<$BlogRSDURL$>

þriðjudagur, ágúst 30

Helgin var frábær enda bjóst maður nú svosem ekki við öðru ;) Fór í innflutningspartý og á Sálarball á föstudagskvöldið og skemmti mér konunglega. Á leugardagskvöldið var farið í mat til Ilmar forstjóra og svo ætluðum að horfa á dvd en við bara fundum ekki fjarstýringuna (hehehe.. Sódóma Reykjavík er snilld) sem var falin ofan í einhverjum af þessum þúsund og einum kassa sem átti eftir að taka upp úr. Lenti svo í heyskap á sunnudaginn sem var bara gaman og fékk vöfflur í verðlaun á eftir fyrir að hafa verið svona dugleg, hehe...
Á morgun er það svo bara Tyrkland með sínum 30 stiga hita og hundrað og eitthvað krökkum til að passa upp á. Kannski komin tími til að fara að þvo fötin sín og pakka, hmmmmm... Reyni kannski að finna tölvu þarna úti ef ég nenni en annars vona ég bara að þið hafið það öll sem allra best á meðan ég sóla mig í útlandinu.

Kveðja, Hólmfríður virðulegur-stærðfræðikennari-á-leið-í-útskriftarferð-með-ekki-svo-virðulegum-nemendum-sínum ;)

mánudagur, ágúst 22

Ég fór í sumarbústað í Hvalfirði um helgina með Ásrúnu, Steinunni, Elvu, Rögga, Sigurbjörgu, Nonna og svo kom Ingvi á laugardaginn. Algjör snilld, lágum í heita pottinum, grilluðum og fórum í fjórhjólaferð.
Næst á dagskrá er að fara að undirbúa sig undir einhverja utanlandsferð með bandbrjáluðum unglingum auk þess að búa til kennsluáætlanir og svoleiðis skemmtilegheit. Um næstu helgi er svo innflutningspartý hjá nýja hjúkrunarforstjóranum í Bolungarvík svo leiðin liggur þangað á föstudaginn :)

Hef eiginlega ekkert til að blogga um en ég bara nennti ekki að byrja að pæla í kennsluáætlunum, námsmati og svoleiðis leiðindum. Ætla samt að reyna kannski að gera eitthvað aðeins meira áður en ég fer heim. Mætti sem sagt eftir hádegi því ég fór í klippingu í morgun og er aðallega búin að vera á netinu að senda tölvupóst og skoða flug síðan. Geggjaður dugnaður í gangi :(

miðvikudagur, ágúst 17

Mætt í vinnuna, ojbara. Er samt eiginlega bara í aðlögun svona eins og litlu börnin á leikskólanum. Vann 3 tíma á mánudag, 4 tíma í gær og stefni á 5-6 tíma í dag ;) En eitthvað þarf maður nú að gera til að stytta sér aldur hér norðan heiða... "það heitir stytta sér stundir Danni minn" hehehe... Dalalíf er snilld :)

þriðjudagur, ágúst 9

Jæja, sumarfrí bloggsins míns er kannski orðið alveg nógu langt... Er löngu komin heim frá Slóvó. Mætti rauð og sæl til Ilmar og fékk að gista þar nokkra daga áður en haldið var norður yfir heiðar.
Var geggjað dugleg og gekk frá Siglufirði til Héðinsfjarðar og þaðan yfir til Ólafsfjarðar helgina fyrir versló með Ásrúnu, Steinunni, Elvu, Björgvin og foreldrum Ásrúnar og Elvu. Gistum í Héðinsfirði á leiðinni og drukkum kakó með rommi, mmmmmmmmmmmm nammigott...
Skrapp svo á Þjóðhátíð í Eyjum um versló með hellings helling af vinum og kunningjum. Fór suður á þriðjudegi og kom aftur heim til Akureyrar á fimmtudegi. Eins og ég sagði bara smá skrepp. Var reyndar bara í Eyjum frá fimmtudegi til mánudags en næstu dagar þar á eftir fóru í það að vera fáránlega góð vinkona Ilmar og hjálpa henni að flytja alla búslóðina á bílnum hans Hannesar.
Seinustu helgi var svo ættarmót hér fyrir norðan. Komst að því að flestir í þessari ætt eru læknar, stærðfræðingar, eðlisfræðingar eða kennarar og að sjálfsögðu djammarar af guðs náð. Mér var sagt að partýið hefði endað um kl hálfsjö á sunnudagsmorgun en ég stakk af fyrir miðnætti til að fara á papaball á Dalvík með Ilmi, Ásrúnu og Steinunni.
Annars er það að frétta að ég er búin að vera með hósta og hálsbólgu í næstum tvær vikur og er alveg að fá ógeð á því. Reyndar eru örugglega til betri ráð til að losna við svona ógeð heldur en að fara í fjögurra daga útilegu með fylleríi og söng...
Nenni ekki að segja ykkur meira í bili en ég skrifa kannski einhvern tíma eitthvað seinna ;)

This page is powered by Blogger. Isn't yours?