föstudagur, desember 23
Ótrúlega líður tíminn hratt. Allavega finnst mér ekkert svo langt síðan ég var í Tyrklandi og fannst þá alveg ótrúlega langt til jóla. Svo er bara komin Þorláksmessa allt í einu og jólin á morgun :) Jólaundirbúningurinn er í góðum gír. Bara eftir að taka smá til, skúra, kaupa nokkrar jólagjafir og skrifa eitt jólakort. Gæti skrifað fleiri en ég nenni því ekki svo hér kemur jólakveðjan ykkar.
Óska ykkur öllum (sem slysast inn á síðuna) gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.
Jólakveðja Hóa

mánudagur, desember 19
Sannleikurinn um Jólasveininn
Jólin nálgast nú óðfluga, og vísindahorninu® barst tölvupóstur frá Matthíasi, 8 ára snáða, sem spurði hvort jólasveinninn væri til. Eftir smá útreikninga (og óforskammaðar þýðingar á hugverkum óþekktra höfunda) komst ég að eftirfarandi niðurstöðu:
1) Engin þekkt afbrigði hreindýra geta flogið. Þó skulum við ekki gleyma því að um það bil 300.000 dýrategundir eru enn óskilgreindar og óflokkaðar, og þótt flest þessara dýra séu skordýr og gerlar, þá er ekki hægt að afsanna á óyggjandi hátt tilveru fljúgandi hreindýra. (Sem jólasveinninn einn hefur séð...)
2) Það eru rúmlega 2 milljarðar barna í heiminum, sé notast við þá skilgreiningu að barn sé manneskja sem ekki hefur náð 18 ára aldri. Þó ber að nefna að þar sem Jólasveinninn þarf ekki að sinna börnum Múslima, Hindúa, Gyðinga og Búddista, minnkar afkastakrafan sjálfvirkt niður í 15% þess fjölda, eða um 378 milljónir barna. Meðaltal barna á fjölskyldu í hinum kristna heimi er um 3,5 börn á heimili, en það gerir 91.8 milljón heimila. Í þessari stuttu úttekt er gert ráð fyrir því að a.m.k. eitt gott barn sé að meðaltali á hverju heimili.
3) Jóladagur sveinka er 31 klst. langur, þökk sé mismunandi tímabeltum og snúningi jarðar, sé gert ráð fyrir því að hann ferðist frá austri til vesturs (sem okkur þótti skynsamlegt). Þetta þýðir að hann þarf að sinna 822.6 heimsóknum á sekúndu. Þannig hefur hann 1 þúsundasta úr sekúndu til þess að leggja sleðanum, hoppa úr honum og niður strompinn, fylla í jólasokkinn og koma gjöfum fyriir undir jólatrénu, borða það nasl er skilið hefur verið eftir fyrir hann, fara aftur upp strompinn, og koma sér á næsta áfangastað.
Ef gert er ráð fyrir því að þessir 91,8 milljón áfangastaðir séu jafnt dreifðir um heiminn (sem við vitum að ekki er, en gerum ráð fyrir til að auðvelda útreikninga okkar), erum við að tala um 0,78 mílur per heimili, eða ferð sem er samtals 75-1/2 milljón mílna löng, að viðbættum stuttum stoppum til þess að gera það sem öll okkar þurfa að gera að minnsta kosti einu sinni á 31 tíma, sem og matarhlé og slíkt. þetta þýðir að sleði jólasveinsins ferðast á 650 mílna hraða á sekúndu, eða á um 3000 földum hraða hljóðsins. Til samanburðar má geta þess að hraðasta farartæki sem maðurinn hefur byggt, geimkönnuðurinn Ulysses, ferðast um á aumingjalegum 24,7 mílum á sekúndu. Mælingar á hraða hreindýra sýna að staðlað hreindýr getur hlaupið á um 15 mílna hraða á klukkustund í skemmri tíma.
4) Farangursþyngd sleðans er annar athyglisverður þáttur í þessum útreikningum. Ef gert er ráð fyrir því að hvert barn fái aðeins meðalstóran lego-kassa að gjöf (um 1 kíló) þarf sleðinn að bera 321.300 tonn, að viðbættri þyngd jólasveinsins, en hann er yfirleitt talinn í góðum holdum. Undir venjulegum kringumstæðum getur hreindýr dregið um 150 kíló. Jafnvel þótt við gæfum okkur að fljúgandi hreindýr (sjá rök 1) gæti dregið TÍU SINNUM þá þyngd, er ekki hægt að leysa verk hreindýra sveinka með 8 dýrum, né heldur 9. Við myndum þurfa 214.200 hreindýr. Þetta eykur farmþyngdina, án þess að taka þyngd sleðans með í reikninginn, upp í 353.430 tonn. Til samanburðar má nefna að það er fjórföld þyngd skemmtiferðaskipsins Queen Elisabeth.
5) Loftmótstaða 353.000 tonna sleða sem ferðast um á 650 mílum á sekúndu er slík að að hreindýrin hitna á svipaðan hátt og geimskip sem er að snúa aftur inn í gufuhvolf jarðar. Forystuhreindýrin 2 mundu draga í sig hita sem samsvarar 14.3 Quintilljónum jóla í orku. Á sekúndu. Hvort. Í stuttu máli myndu þau brenna upp á örskotsstundu og skapa í leiðinni ærandi hljóðsprengjur í kjölfari sínu. Aðeins tæki 4,26 þúsundustu úr sekúndu fyrir hreindýrasameykið að brenna upp. Á meðan þarf Jólasveinninn að þola miðflóttaafl sem er 17.500,06 sinnum sterkara en aðdráttarafl jarðar. 125 kílóa Jólasveinn (sem er varlega áætlað) myndi vera negldur aftur í sleðann sinn með 4.315.015 punda þrýstingi.
Með öðrum orðum: ef Jólasveinninn hefur einhverntíman borið út jólagjafir, þá er hann án nokkurs vafa látinn núna. Því miður, Matthías minn :(
Stolið af þessari síðu

fimmtudagur, desember 15
Spennu og gamanleikritið "Kennslustund með Hólmfríði rétt fyrir jól"
Persónur:
Hólmfríður stærðfræðikennari (ótrúlega flott persóna)
Fullt af fólki úr ónefndum bekk í MA
Hólmfríður: Sko ég er búin að fá nóg, vinsamlegast grjóthaldið kjafti. Helmingurinn af ykkur er síblaðrandi, helmingurinn er að reyna að hlusta en heyrir ekki í mér fyrir hinum og helmingurinn ...
Nemendur urlast úr hlátri og ókennsluhæft er í nokkrar mínútur.
Ónefndur nemandi: Og þú ert að kenna líkindareikning!!!
Nemendur eru við það að drepast úr hlátri svo Hólmfríður ákveður að bjarga þeim frá bráðum dauðdaga með því að halda áfram að tala um tveggja breytu slembistærðir og jaðarlíkindaföll. Það tekst og Hólmfríður er hetja dagsins ;)

mánudagur, desember 12
Gleymdi ég ekki að segja ykkur að mér tókst að brjóta visakortið mitt þegar ég var að kenna um daginn? Snillingurinn ég var með kortið í rassvasanum og settist svo á brúnina á kennaraborðinu og heyrði bara smell :( Búin að sækja um nýtt kort en gleymi bara alltaf að ná í það.
Visalausa helgin tókst nú samt frekar vel. Ilmur, Jón Atli, Hannes, Kitta og Keith komu öll norður um helgina:) Fór á jólahlaðborð í hádeginu á laugardag, í Sjallann um kvöldið og á leiksýninguna Ósýnilegi kötturinn í gærkvöldi þar sem MA-ingar fóru á kostum. Alltaf nóg að gera;) Það eina slæma við helgina er það að ég náði mér í eitthvað kvef og er hnerrandi í tíma og ótíma, aaaatsssjúúúú...

miðvikudagur, desember 7
Bíddu, bíddu. Bara allt í einu kominn 7. des og enginn búin að láta mig vita (var meira að segja næstum því búin að skrifa nóv) Siðastu tvær vikur eru nefnilega búnar að vera ótrúlega fljótar að líða og alltaf nóg að gera. Það var gaman á árshátíðinni þó að maður hafi verið orðinn svolítið þreyttur eftir 5 tíma borðhald og skemmtidagskrá;) Minni kvenna og minni karla var snilld og svo dó Ingvi næstum úr hlátri þegar farið var að syngja drykkjuvísur með mikilli innlifun á áfengislausu árshátíðinni okkar. (Mikið lifandi skelfingar ósköp er gaman að vera svolítið hífaður.)
Nemendur MA eru líka búnir að fara í samræmd próf síðan ég bloggaði seinast, eða fara ekki í þau réttara sagt. Á heimasíðu MA fást eftirfarandi upplýsingar: "Í íslensku voru skráðir 54 og 9 mættu. Í ensku voru 57 skráðir og 11 mættu. Í stærðfræði voru 14 skráðir en enginn mætti." Ég vil líka taka það fram að stærðfræðiprófið var daginn eftir árshátíð. Það var meira að segja búið að breyta stofutöflunni til að hafa tvær stofur lausar fyrir þennan fjölda sem ætlaði að mæta og til dæmis átti ég að færa mig úr M2 yfir í G28 með þá 15 úr 4UX sem ekki ætluðu að taka íslenskuprófið. Það mættu 26. Tekið skal fram að stofa G28 rúmar bara 20 manns. En þetta reddaðist því þeir örfáu sem voru að taka próf í M2 voru þá bara færðir í M1 með hinum örfáu sem voru að taka próf og við fengum að vera í M2. Í tímanum á eftir var ég líka búin að hamra inn í 1. bekkinga að mæta í M4. En þar var einmitt 4U sem hefði næstum allur átt að vera í prófi svo ég hélt bara áfram að vera í M2. Þetta var snilldarmorgun:)
Ef einhver heimtar að fá jólakort frá mér þá vinsamlegast kommentið hér að neðan því ég nenni eiginlega ekki að skrifa jólakort.
P.S. Ilmur: þú þarft ekki að skrifa, ég veit að annars fæ ekki að vera vinkona þín lengur ;)