sunnudagur, janúar 29
Ég elska sum sms;)
sms kl 11:48
Flugfélag Íslands. Það er ófært vegna viðvörunar frá veðurstofu, athugun kl. 14:30
sms kl 13:28
Öllu flugi frá Ísafirði hefur verið aflýst. Ath. á morgun kl. 08:30, vinsaml. látið vita ef þið ætlið EKKI að nota sætin.
Skrapp sem sagt vestur um helgina. Ingvi og Jón Atli voru svo góðir að elda fullt af frábærum fuglum handa fullt af frábæru fólki heima hjá Jóni Atla og Ilmi í gær. Takk strákar! Fín veisla:)
Átti flug til baka kl 13:20 í dag en hér er ég enn og kvarta ekkert yfir því;)

miðvikudagur, janúar 25
Það sem maður getur ekki fundið um sjálfan sig á netinu, hehehe...
...og um kærastann:)
Hehehe... mér finnst þetta seinasta best... hehehe
Algjör steypa samt, held að ég sé kannski búin að vinna alveg nóg í dag, orðin steikt í hausnum, vííííííí...
Ten Top Trivia Tips about Hóa!
- Some hotels in Las Vegas have Hóa floating in their swimming pools!
- Without Hóa, we would have to pollinate apple trees by hand.
- Hóa is the only king without a moustache on the standard pack of cards!
- Hóaocracy is government by Hóa.
- Hóa invented the wheel in the fourth millennium BC.
- Devoid of her cells and proteins, Hóa has the same chemical makeup as sea water!
- If you toss Hóa 10000 times, she will not land heads 5000 times, but more like 4950, because her head weighs more and thus ends up on the bottom.
- The first domain name ever registered was Hóa.com!
- Hóa can't sweat!
- It is impossible to fold Hóa more than seven times!
...og um kærastann:)
Ten Top Trivia Tips about Ingvi!
- The only planet that rotates on its side is Ingvi.
- Ingvi has only one weakness - the colour yellow.
- Ingvi is the only one of the original Seven Wonders of the World that still survives.
- Ingviolatry is the mindless worship of Ingvi!
- Ingvi is the only metal that is liquid at room temperature.
- It can take Ingvi several days to move just through one tree!
- American Airlines saved forty thousand dollars a year by eliminating Ingvi from each salad served in first class!
- Cats use their Ingvi to test whether a space is large enough for them to fit through.
- It takes 17 muscles to smile, and 43 to frown at Ingvi!
- The moon is 400 times closer to the Earth than Ingvi, and 400 times smaller!
Hehehe... mér finnst þetta seinasta best... hehehe
Algjör steypa samt, held að ég sé kannski búin að vinna alveg nóg í dag, orðin steikt í hausnum, vííííííí...
þriðjudagur, janúar 24
Sorrý elskurnar en það er bara svolítið mikið að gera en samt ekkert merkilegt að gerast. Skrapp suður þarsíðustu helgi og djammaði smá, kom svo heim og á mánudeginum fóru allir nemendur mínir í próf. Síðan þá er ég búin að vera að fara yfir prófin þeirra og reikna út einkunnir. Tók nú samt smá pásu í gær til að brjóta gleraugun mín! Fór í körfubolta með kvenkynskennurum og fleiri konum og fékk boltann í fésið. Ég er sem sagt búin að læra það að maður á víst að grípa boltann en ekki að fá hann í andlitið og svo er víst betra að fara bara með linsur þegar maður er að fara að leika sér með svona hættulega hluti. Gat að sjálfsögðu ekki keyrt heim svo að Inga leikfimikennari keyrði bílinn minn heim. Hló allan tíman því ég sá allt úr fókus og það var svo fyndið. Þið vitið eins og í lok fréttatímans þegar þeir sýna fyrst allt úr fókus og svo í fókus. Sá t.d. öll ljósin á ljósastaurunum sem voru langt í burtu sem risastóra hringi svo ég sá eiginlega ekki neitt annað. Æi, óskiljanleg setning. En vonandi skiljiði hvað ég meina;)
Ég hefði líka keyrt ótrúlega oft upp á kantsteininn og hugsanlega keyrt gangandi vegfarendur niður ef ég hefði keyrt. Ég og Inga vorum að grínast með það á einu spælegginu (pínulitlu hringtorgi) hvernig ég hefði keyrt þegar hún segir "Löggan hefði allavega tekið þig núna" og heyrist í mér "ha, er þetta löggan?". Tekið skal fram að löggubíllinn var á sama litla hringtorginu, hehehehehehe. Stundum er gaman að sjá algjörlega úr fókus...
P.S. ætlaði að blogga um þetta í gærkvöldi en nennti ekki að vera klesst upp við skjáinn, það væri samt massafyndið að prófa að fara í tölvuna hálfblindur!

föstudagur, janúar 6
Gleðilegt nýtt ár :D
Jólafríið var æði. Aðfangadagur og Jóladagur liðu eins og venjulega með tilheyrandi áti á reyktu kjöti. Annan í jólum var farið í messu, í heimsókn til ömmu og svo bauð ég nokkrum "gömlum" MA-félögum í partý um kvöldið sem endaði í Sjallanum. (Engin komment á Sjallaferðina takk.) Þá var komið að enn einu ferðalaginu á þessu ári;) (frá því að ég hitti Ingva hef ég stigið upp í flugvél 28 sinnum, toppið það, hehe...) Flaug vestur 28.des, eða það var planið, var veðurteppt í sólarhring fyrir sunnan ásamt Ilmi og Jóni Atla. Við notuðum bara tækifærið og fórum út að borða með Hannesi, Óla, Sigga, Ingu og Gumma. Næstu dagar fóru í algjöra afslöppun í Bolungarvík:) Áramótin voru snilld. Sá Ingva ekkert á gamlársdag því hann var upptekinn við að búa til þess líka snilldarflugeldasýningu. Svo var borðað á sig gat, farið á brennu, í partý, á ball og í annað partý. Lá svo bara í leti fyrstu dagana á þessu ári. Fór heim 2.jan sem á vestfirsku þýðir 3.jan. (ekki alveg búin að fatta að það er komið nýtt ár, skrifaði fyrst des, hehe...) Búin að kenna núna í 3 daga og bara tveir kennsludagar eftir og svo koma próf. Sem minnir mig á það, ég er farin heim að semja próf, heyrumst;)