föstudagur, febrúar 24
Hvað gerir maður þegar manni býðst far til Bolungarvíkur?
Nú auðvitað skellir maður sér með:) Vííííííííí...
Nú auðvitað skellir maður sér með:) Vííííííííí...
mánudagur, febrúar 20
Hékk bara heima hjá mér þessa helgi, ótrúlegt en satt ;) Algjör dúlludagur á föstudaginn, skrapp í bæinn og í klippingu og svona dútl. Helgin fór svo í alls konar dútl. Horfði á Silvíu Nótt rústa júróvísjón og gerði tilraun til að læra að verða partýfær á gítar (eftir 3 að nóttu). Fann gítarinn hennar mömmu inn í bílskúr þegar ég var að vesenast þar og mig hefur alltaf langað að kunna eitthvað á svoleiðis dót. Ég klippti meira að segja neglurnar á vinstri hendi (ekki hitt vinstri heldur alvöru VINSTRI) til að geta spilað og svo spilaði ég bara þangað til ég var að drepast í fingurgómunum. Búin að læra nokkra hljóma. Meira að segja fleiri en G C D, kann líka næstum því A Dm D7 E Em E7 F og B (held allavega að þeir heiti það hehe). "Stál og hnífur" og "Fjöllin hafa vakað" eru alveg að koma. Samt allt of lengi að skipta á milli ennþá, en það hlýtur að koma með æfingunni ... ef ég nenni að halda þessu áfram ;)
miðvikudagur, febrúar 15
Keyrði vestur í fyrsta skipti í mörg ár um helgina. Ég og Hannes mættumst í Brú og rúntuðum svo til Bolungarvíkur. Ótrúlega gott að hafa einhvern til að kjafta við og keyra bílinn;) (Takk Hannes) Ég, Ingvi, Hannes, Ilmur og Jón Atli tókum svo þátt í spurningakeppninni "Drekktu betur" á föstudagskvöldið. Ég og Ilmur vorum saman í liði og rústuðum öllum spurningum tengdum Vestfjörðum (eða ekki, á ég að vita hver bæjarfógetinn í Súðavík er?) en strákarnir voru nú samt nær því að vinna, vantaði bara eitt rétt svar. Á laugardaginn var tekinn smá rúntur á Flateyri og Þingeyri. Á Flateyri sáum við hvað lítil vindhviða (tjaa eða 43m/s) getur eyðilegt ótrúlega mikið. Á Þingeyri skoðuðum við hinsvegar staðinn þar sem Ilmur og Jón Atli ætla að gifta sig í sumar. Stóðum þar og spegúleruðum hvernig þau ætluðu að hafa þetta og hvernig þetta yrði. Á leiðinni heim þurftu Ingvi og Jón Atli að skjóta fugla, bráðnauðsynlegt alveg hreint. (hehe) Fórum svo heim og ég steinsofnaði í sófanum. Ingvi dró mig svo á lappir því við vorum boðin í mat til Jóns og Jónsu (þ.e. Ilmar) ásamt Hannesi(sem sá samt um eldamennskuna), Siggu og Sigurjóni. Smökkuðum þar tvö læri og svo var atkvæðagreiðsla um hvort væri betra að hafa í brúðkaupinu og ekki voru allir sammála. Seinna um kvöldið drifum við okkur á þorrablótsball í Hnífsdal þar sem "Til hamingju Ísland" var spilað 3-4 sinnum. Á sunnudaginn brunuðum ég og Hannes svo heim á leið. Síðan er bara mest lítið búið að gerast. Ég er "bara" að kenna og það er allt að komast á fullt skrið þar. Svo er bara júróvísjón undankeppnin á lau og ég segi bara Áfram Silvía Night!!!