<$BlogRSDURL$>

þriðjudagur, mars 28

Það var kennara-nemenda kvöldvaka í gær og að sjálfsögðu þarf þá að finna nokkra vaska kennara til að fíflast eitthvað. Hólmfríður Hot reddaði því af stakri snilld. Með hárið ALLT út í loftið, stjörnu í kringum annað augað og glimmer út um allt söng hún aðalsmell ársins "Til hamingju MA" (gleymdi að vísu smá úr textanum en allir voru löngu dánir úr hlátri og þakið rifnað af húsinu svo það tók enginn eftir því). Bakraddirnar brilleruðu í danssporum og söng og við getum víst ekki gleymt dönsurunum sem voru tremma töff skiluru. Sigurður Helgi konsertmeistari sem er ógesslega töff bjargaði líka málunum skiluru því að sjálfsögðu verður Hólmfríður Hot að hafa tremma flott undirspil.


Hér er textinn:

Til hamingju MA


Hey þú ógesslega töff ég er að tala við þig
ég er Hólmfríður Hot, svakalega flott ég veit þú þráir mig
Born in Akureyri, hæfileikarík algjört landsbyggðarfrík
Ég veit ég vinn fokkings úrslitin, ég verð kennari ársins

Til hamingju MA, með að ég kenni hér
ég er Hólmfríður Hot og þið lærið hjá mér
Meistari Jón Már fær sko flog er ég kem
Ég er fædd til að pín'ykkur - reikna í hel
töff töff töff

Mitt lag ógesslega töff ekkert nemend'ógeð
Það er töff ókey, það er ekki gay, ég er komin hér to stay
Aðrir kennarar eru fýlupúkar en ég er ókey
Þið elskið mig, þið dýrkið mig, en samt eitthvað svo glatað

Til hamingju MA, með að ég kenni hér
ég er Hólmfríður Hot og þið lærið hjá mér
Meistari Jón Már fær sko flog er ég kem
Ég er fædd til að pín'ykkur - reikna í hel
yeah yeah yeah

|: Til hamingju MA :|
wooh wooh yeah yeah yeah yeaaah

Til hamingju MA, með að ég kenni hér
ég er Hólmfríður Hot og þið lærið hjá mér
Meistari Jón Már fær sko flog er ég kem
Ég er fædd til að pín'ykkur - reikna í hel

Til hamingju MA, með að ég kenni hér
ég er Hólmfríður Hot og þið lærið hjá mér
Sigurlaug Anna ég fer fyrir þig
Rústessu dæmi fæ tremma há laun
töff töff töff

(texti: Anna Eyfjörð, B.A. í frönsku)


Já það er búið að vera gaman í vinnunni í dag;)

föstudagur, mars 17

Til hamingju ég með daginn, bara orðinn töttögofemm allt í einu:) Bý bara ennþá heima hjá mömmu og pabba og er enn ekki búin að ákveða hvað ég ætla að verða þegar ég verð stór. Mér finnst það bara fínt, það þýðir bara að það er nóg eftir af lífinu. Enginn æsingur á þessum bænum, því eins og miðinn í páskaegginu forðum daga segir "hvað liggur á? það er hvergi kviknað í..." ;)
Partý í kvöld fyrir norðan (aðallega familían) og fyrir sunnan á laugardaginn eftir viku (aðallega vinir mínir sem nenntu ekki að koma norður í partý). Segi ykkur meira um það seinna, heyrumst:)

This page is powered by Blogger. Isn't yours?