<$BlogRSDURL$>

föstudagur, maí 26

Jæja þá er kennslan búin þetta árið og bara prófin eftir. Ég keyrði vestur í gær í ótrúlega góðu veðri með tónlistina í botni og naut lífsins. Hafði ekki séð kærastann minn síðan 1. maí svo það var tími til kominn að drífa sig að stað. Ætla að vera hér í "afslöppun" um helgina og bruna svo norður aftur og sitja yfir prófum, semja próf og fara yfir próf í 2-3 vikur. Farin út í góða veðrið bless í bili.

þriðjudagur, maí 9

Síðustu vikur hafa eiginlega bara farið í það að vinna fyrir utan þarsíðustu helgi. Ingvi kom og við skruppum í sveitina (þar sem þeir pabbi ræddu mögulega virkjanakosti í lækjunum í kring) og í Græna lónið í Mývatnssveit (þar sem ég spurði Ingva hvort það væri líka "rassur í sandinum" á honum). Stungum af að heiman á sunnudagskvöld þegar systir mín fyllti húsið af krökkum. Fórum á La Vita e Bella og röltum síðan á Kaffi Amor og kjöftuðum þangað til óhætt var að halda heim á leið.
Ég og Alma fórum svo í óvissuferð með 1.A núna um helgina. Nokkurs konar uppbót fyrir að missa af 10. bekkjar ferðinni. Lögðum af stað eftir skóla á föstudaginn og fórum á hestbak. Ég datt ekki af baki. Svo fórum við í sund til að þvo af okkur skítinn áður en við fórum í Miðgarða á Grenivík þar sem við gistum. Þar fengum við pizzur og gos og svo vöktu krakkarnir fram eftir nóttu en hún gamla ég fór nú bara að sofa um eittleytið. Kamilla og Vigdís voru nú reyndar svo góðar að finna bók handa mér að lesa en mig langaði meira að fara bara að sofa. Bókin hét "Þegar barn fæðist". Ég var svo vakin við þennan fagra söng um hálfþrjú (huhummm...) en sofnaði um klukkutíma síðar aftur. Á laugardagsmorgun drifum við okkur upp á Kaldbak í bongó blíðu og þeir sem vildu renndu sér niður á skíðum, brettum eða snjóþotum. Tókum svo til í Miðgörðum og fengum okkur kleinur og kakó. Á leiðinni heim stoppuðum við hjá Ástu líffræðikennara sem býr þarna rétt hjá, fórum í fjárhúsin og inn í "kaffi".
Næsta helgi verður líka svo skemmtileg. Fer til tannlæknis í endajaxlatöku á föstudaginn og svo hef ég um 80 lítil próf til að fara yfir ef mér fer að leiðast eitthvað;)
Annars eru tvær vikur í próf og alveg nóg að gera:)

This page is powered by Blogger. Isn't yours?