þriðjudagur, september 26
Haustferðin var snilld, æðislegt labbveður miðað við árstíð og gott stuð á liðinu. Það eru nokkrar myndir á MA vefnum ef þið viljið skoða. Haldiði svo að kallinn hafi ekki bara eldað fyrir kellinguna sína, foreldra hennar og systur á sunnudaginn í hádeginu. Það þýðir heldur ekkert að geyma alla þessa villibráð bara í frystinum;) Minn var bara mættur þvílíkt hress í eldhúsið eldsnemma að morgni blístrandi að krydda gæsina og skella henni í ofninn ásamt einhverju gumsi. Ég reyndi nú að hjálpa aðeins til og skera niður grænfóður en ég var ekki alveg jafn morgunhress. Restin af deginum fór í að melta þennan dýrindis mat og kveðja Ingva. Hann er sem sagt bara svona hálf-fluttur, eitthvað af fötunum og dótinu hans er komið og það styttist alltaf í að hann komi til að vera:)
föstudagur, september 22
Fyrsta vikan búin og nemendurnir eru strax búnir að smita mig af kvefi. Ég ætla samt í haustferð kennara á morgun, rölta að Dettifossi að vestanverðu og vaða eitt stykki vatnsfall. Ingvi ætlar að koma með en hann ætlar að kíkja á kellinguna sína (þ.e.a.s. mig) um helgina. Annars er lítið að frétta, reyni bara að kenna þessum litlu systkinum vina minna eitthvað af viti og hinum nemendunum líka.
miðvikudagur, september 13
Jæja, nú er ég mætt í netsambandið upp í skóla og meira að segja búin að fá afnot af nýrri fartölvu hjá skólanum svo nú fer ég kannski að blogga meira.
Gleymdi víst að segja ykkur að ég og Ingvi værum að fara að leigja 5 herb. einbýlishús með bílskúr, háalofti og öllum húsgögnum. Síðasta vika fór í það að flytja og koma mér fyrir þó að Ingvi komi ekki alveg strax, þarf víst að klára eitthvað þarna fyrir vestan fyrst. Hann kemur svo með hreindýrakjöt í frystikistuna því hann skrapp austur fyrr í haust á hreindýraveiðar. Ég hef aldrei smakkað hreindýrakjöt svo að ég er farin að hlakka til. Hann skrapp nú samt í smá heimsókn til mín um helgina og við fórum í göngur í sveitinni á laugardaginn. Langt síðan ég fór í göngur síðast svo lappirnar voru ekki í sínu besta formi á sunnudaginn en það var allt í lagi. Vikan er svo búin að fara í fundasetu og undirbúning kennslu. Skólasetning MA var svo áðan og þegar ég áttaði mig á því að þetta væri þriðji veturinn sem ég er að kenna þá fannst mér ég allt í einu vera orðin hrikalega gömul. Annars leggst veturinn bara vel í mig og það verður bara gaman að byrja aftur.