miðvikudagur, nóvember 15
Ég er á lífi þó ég sé mjög löt við að blogga þessa dagana. Við Ingvi erum búin að fara á árshátíð Kvennakórs Akureyrar, hanga heima og hafa það gott, kíkja til foreldra minna í mat og skreppa suður í afslöppun (ef það kallast afslöppun að fara með 3,5 og 7 ára börnum í Kringluna) og kíkja á pínulitla krílið hann Jóhann Ása hennar Ilmar. Símanum hans Ingva var stungið í þvottavélina einn daginn svo við skruppum í Símann keyptum síma og fengum okkur ADSL og Skjá-sport sem var alveg bráðnauðsynlegt að Ingva mati. Við erum sem sagt líka komin með heimasíma ef einhver vill vita af því.
Annars er kominn hellingur af snjó hérna fyrir norðan svo það er greinilega kominn vetur. Gatan okkar fer að nálgast það að vera ófær en bíllinn hans Ingva kemst auðvitað allt, allavega með hann við stýrið;)
Talandi um bíla þá fór alveg rosalega í taugarnar á mér að horfa á fréttirnar um merkingar hjá gatnaframkvæmdum. Það er svo sem allt í lagi að benda á að þetta gæti verið betra en það er hvergi minnst einu orði á það að hugsanlega gæti fólk bara keyrt á (eða undir) löglegum HÁMARKShraða með nógu mikið bil á milli bíla og þá væri þetta miklu minna vandamál. Á mbl.is er frétt þar sem kemur fram að alvarleg umferðarslys eru 43,6% fleiri en á sama tíma í fyrra. Í lok fréttarinnar eru talað um þær vegaframkvæmdir sem á að gera. Það er gott mál að bæta samgöngurnar. Ég held bara að vegirnir hafi ekki versnað það mikið frá því í fyrra eða að umferðin hafi aukist það mikið að það sé hægt að kenna því um. Eru fréttamennirnir að gefa þau skilaboð að slys séu eingöngu vegakerfinu og merkingum gatnaframkvæmda að kenna? Hvað með að fólk aki miðað við aðstæður og taki t.d. ekki fram úr á stöðum þar sem sést ekki hvað er framundan? Hvað með að bílstjórarnir beri sjálfir smá ábyrgð á öryggi sínu og annarra í umferðinni?
Ég er bara orðin þreytt á því hvað Íslendingar virðast vera orðnir vanir því að allt sem fer úrskeiðis sé einhverju/einhverjum öðrum að kenna en þeim sjálfum.
(Ég er ekki að segja að ég geri þetta aldrei en vonandi ekki of oft.)
Nokkur dæmi:
Ef ökumaður keyrir á 20 km/klst yfir hámarkshraða og of nálægt næsta bíl á undan, kemur svo að gatnaframkvæmdum þar sem þarf að hægja á og keyrir aftan á bílinn fyrir framan þá er það vegna þess að gatnaframkvæmdirnar voru ekki nógu vel merktar svo hann vissi ekki að hann þyrfti að fara að hægja á (eða þá að helv. fíflið sem var að keyra hinn bílinn bara snarhemlaði allt í einu).
Ef nemandi lærir hvorki í tímum né heima og fellur á prófi þá er það vegna þess að kennarinn var ömurlega lélegur kennari eða prófið var allt of erfitt.
Ef Íslendingur er alltaf rekinn úr vinnu vegna þess að hann er svo húðlatur og á erfitt með að fá nýja vinnu með þessi "meðmæli" þá er það vegna þess að helv. útlendingarnir eru að stela vinnunni hans.
Ef einhver nennir ekki að hreyfa sig þá er það vegna þess að það er alltof mikið frost úti og það er bæði leiðinlegt og dýrt að fara í ræktina.
Auk þess heyrir maður stundum um fólk sem lenti (bara alveg óvart) í framhjáhaldi, fíkniefnum eða gjaldþroti eins og það hafi ekkert val um það.
Mér finnst að það vanti smá aga og ábyrgð hjá þessari þjóð.
Hvað finnst ykkur?