miðvikudagur, desember 20
Ég er komin í jólafrí og get hætt að hoppa um skólann á hækjum. Ég hef komist að því síðustu daga að þessi skóli er svo ekki gerður fyrir hreyfihamlaða. Stigarnir á Möðruvöllum eru líka í ótrúlega skrýtnum hlutföllum. Það finnst nú mörgum nógu erfitt að ganga upp á efstu hæð en þegar maður er kominn á hækjur líka þá er það nú bara ein hæð í einu, allavega fyrir aula eins og mig sem er ekki í góðu formi. Lyftuhurðin á Hólum er frekar þung og í lyftunni þarf að halda takkanum inni allan tíman svo hún hreyfist. Stigarnir í Gamla skóla eru auðvitað bara sér á báti auk þess sem það eru bara klósett á neðstu hæðinni. En það hefur nú bara gengið furðuvel að komast á milli staða í skólanum núna seinustu daga en ég hef líka fengið stundum að skipta við aðra kennara um stofu.
Á morgun ætla ég að hoppa um bæinn að kaupa jólagjafir og komast í jólaskap:)
Á morgun ætla ég að hoppa um bæinn að kaupa jólagjafir og komast í jólaskap:)
sunnudagur, desember 17
Þessi desember mánuður er sko ekki minn mánuður. Byrjaði á því að ég fékk illt í bakið og svo fékk ég hvarmabólgu og var með eldrauð sokkin augu í u.þ.b. viku. Sumir nemendur mínir gátu ekki horft í augun á mér því þeim fannst þetta svo ógeðslegt. Ekki skánaði ástandið svo þegar ég sneri mig á ökla þegar ég sparkaði í rúmfótinn. Var reyndar lengi að átta mig á því af hverju öklinn væri svona bólginn því ég hefði ekkert misstigið mig. Ingvi segir að ég hefði bara átt að setja á mig gleraugun áður en ég stæði á fætur og að ég þurfi greinilega í laser-aðgerð. Málið var að ég sá alveg rúmfótinn en hann var bara pínu fyrir mér. Mér er farið að líða eins og hálfgerðum aumingja því Ingvi gerir (næstum) allt fyrir mig. Eldar, tekur til og nær í það sem mig vantar. Annars ligg ég núna upp í sófa og er að vinna. Sem betur fer eru bara tveir og hálfur kennsludagur eftir fyrir jól ;)
fimmtudagur, desember 7
Það eru bara tvær vikur í jólafrí og mér sýnist að þær fari nú aðallega í vinnu. Þegar skólinn er búinn 20. des. þá skal ég fara að hugsa um jólagjafir og jólakort og svoleiðis dót. Þá verður líka allt of seint að skrifa jólakortin hvort sem er svo ég líklega bara sleppi því. Svo getur líka vel verið að ég skreppi bara með Ingva vestur og við eyðum jólunum í Miðhúsum með fjölskyldunni hans. Það kemur bara í ljós. Ég kem svo líklega aftur til Ak. fyrir áramót og eyði þeim hér. Þetta kemur allt í ljós einhvern tíman.
Við fórum á árshátíð MA um seinustu helgi. Hátíðin hófst svo á því að litla systir og aðrir fjórðubekkingar gengu í salinn. Bautinn sá um veitingarnar að þessu sinni en ekkert moðsteikt lamb var á matseðlinum sem kom þó nokkrum kennurum á óvart. Maturinn var mjög góður bara eins og alltaf. Gleðitríó Sigurðar Marteinssonar söng um vini og hvernig þeir hjálpa hvor öðrum að læra sönnunina á reglu 4.2 og fleira. Minni karla og minni kvenna voru frekar góð, Úlla og Snorri stóðu sig vel þar. Skaupið var á sínum stað og með fyndnustu atriðunum var þegar nemandi datt í gamla skóla og svo voru húsverðirnir sýndir hlægjandi á skrifstofunni sinni að merka við á vegginn, "náðum einum í viðbót". Það var líka fyndið þegar nemendurnir mönuðu stærðfræðikennarann til að deila með núlli og þegar hann gerði það þá sást bara blóðið slettast á nemendurna í fremstu röð. Jagúar spilaði svo fyrir dansi og í hléi voru gömlu dansarnir en þá vorum við löngu farin heim.
Helgin fór svo í að gera laufabrauð, taka til í stóra húsinu okkar, skreppa í tvö afmæli, mat til mömmu og aðrar tvær heimsóknir. Kitta kom í örheimsókn á sunnudaginn og Ilmur og Jón Atli komu á þriðjudaginn og borðuðu heilt læri. Alltaf gaman þegar fólk kemur í heimsókn. En nú er ég að fara á fund svo ég er hætt í bili.