þriðjudagur, ágúst 14
Fórum vestur um versló og vorum frá miðvikudegi til þriðjudags. Eyddum nokkrum dögum í Bolungavík og örfáum í Miðhúsum ásamt um 30 manns, flestum skyldum Ingva. Um síðustu helgi fórum við svo í mat til Diddu frænku á fös og hittum næstum alla föðurfjölskyldu mína, Jónsa í Kálfskinni á lau ásamt vinnufélögum Ingva og mömmu á sun ásamt fjölskyldu þýsku stelpunnar sem er búin að vinna hjá henni í vetur. Ég hef sem sagt ekkert mikið þurft að elda síðustu vikur og svo erum við búin að hitta fullt af fólki. Ég byrja svo í skólanum á morgun svo nú er sumarfríið mitt að verða búið, buhu. (Ég veit, ég veit, ég hef langt sumarfrí.) Lotan núna verður frá 11-17 á mið, 8-16 á fim og svo 8-18 bæði á fös og lau. Veit ekki hvernig ég lifi þetta af búin að vera bara að gera það sem mér dettur í hug síðasta mánuðinn. En vonandi verður þetta bara skemmtilegt. Er byrjuð að lesa bókina Phychology applied to teaching og hef komist að því að a.m.k. fyrstu 20 bls fara bara í að sannfæra mann um að það sé nauðsynlegt að kunna það sem á eftir kemur ef maður ætlar að kenna. Gaman að því. Annars fann ég bók sem mig langar miklu meira að lesa en þessa þegar ég var að skoða í Bókval. Hún heitir Statistics for those who (think they) hate statistics. Ekki það að ég hati tölfræði en það væri gaman að skoða hvernig þeim tekst að gera þetta áhugavert. Hún kostaði hins vegar 8500 kall svo ég held ég bíði aðeins með að kaupa hana.
P.S. Framkvæmdir ganga svona sirka eins og við var að búast. Ákváðum að bíða aðeins með stofuna og byrja á að klára herbergið sem ég ætla að nota sem skrifstofu.