miðvikudagur, október 3
Ok þá, kannski kominn tími á blogg;) Núna eru nefnilega 2 dagar í próf í sálfræði og næstu kennslulotu í HA og ég á eftir að fara yfir fullt af heimadæmum og prófum fyrir helgi þannig að núna er úrvals tími til að blogga aðeins. Síðustu vikur hafa farið í það að vinna og læra. Ingvi stakk af vestur í viku og á meðan byrjaði kennslan og svo skrapp ég í haustferð með kennurunum í Svarfaðardal. Við fórum m.a. í gönguferð og til brúðugerðarmannsins Bent sem er algjör snillingur. Tengdaforeldrar mínir komu svo um síðustu helgi og sprengdu vindsængina okkar. Við buðum þeim nú samt ásamt pabba og mömmu upp á hreindýrasteik eins og venjulega. Kannski spurning um að fara að breyta til og gefa gestum eitthvað annað en hreindýr. Fór svo í hálfa skálaferð með umsjónarbekknum mínum á mánudaginn og var alveg búin á því þegar ég kom heim um kvöldið. Er komin með kvef og hálsbólgu svo það er örugglega ekkert gaman að vera nemandi minn þessa dagana og hlusta á mig tala með rámri röddu inn á milli hóstakasta en þau verða bara að sætta sig við það. Næstu dagar og vikur fara líklega bara í vinnu, lærdóm og kakódrykkju, spennó spennó.